Back to search

Bifröst University

Tækifæri Íslands á Norðurslóðum : samkeppnishæfni umskipunarhafnar fyrir norðurslóðir á Íslandi, hagkvæmni og fjárfestingaþörf

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar ritgerðar er að rannsaka hvort umskipunarhöfn á Íslandi er samkeppnishæfur kostur fyrir fjárfesta sem áhuga hafa á siglingum yfir Norður-Íshafið. Loftslagsbreytingar hafa valdið því að hafís á norðurslóðum er í breyttri mynd frá því sem áður var, bæði vegna minnkandi yfirborðs og meiri hreyfanleika, og er það talið opna á nýjar siglingaleiðir milli austurs og vesturs. Til þess að greina samkeppnishæfni verður mið tekið af markaðshlutunaraðferð Kotlers og lagst í rannsókn á því hvaða hlut fluttra gámaeininga er raunhæft að höfn á Íslandi umskipi. Dreifingarhlekkur Virðiskeðju Porters verður notaður til þess að meta staðsetningu umskipunar til verðmætasköpunar og loks varpað ljósi á helstu styrkleika og tækifæri umskipunarhafnar á Íslandi til þess að ná samkeppnisforskoti til langs tíma. Þá verður arðsemismat framkvæmt með því að setja upp helstu kostnaðar- og tekjuliði með samanburðaraðferð við verðmat. Með núllpunktagreiningu verður í kjölfarið sagt til um fjölda gámaeininga sem umskipa þarf til þess að skila hagnaði. Litið verður til þess hvernig eignarhald hafnarsvæða er í dag og með hvaða fyrirkomulagi einkaaðilar hafa komið að rekstri hafna. Umskipunarhöfn, Norður-Íshaf, samkeppnishæfni, arðsemi, fjárfestar

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sara Pálsdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20646
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20646

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sara Pálsdóttir 1983-. Tækifæri Íslands á Norðurslóðum : samkeppnishæfni umskipunarhafnar fyrir norðurslóðir á Íslandi, hagkvæmni og fjárfestingaþörf. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20646