Back to search

Bifröst University

Umpólun í Evrópumálum : Evrópustefna Framsóknarflokksins

Abstract

dc:description.abstract

Fjallað er um Evrópustefnu Framsóknarflokksins á lýðveldistímanum og sýnt fram á hvernig afstaða flokksins til Evrópumála hefur að miklu leyti mótast af því hvort flokkurinn hefur verið í ríkisstjórn eða stjórnarandstöðu þegar ákvarðanir hafa verið teknar hverju sinni. Evrópustefna flokksins er skýrð út frá kenningum um ESB efahyggju og þjóðernishyggju með tilvísan í sögulega arfleið flokksins. Rannsóknarspurning verkefnisins er: Hvað skýrir vendingar Framsóknarflokksins í Evrópumálum eftir hrun? Vegna tveggja grundvallarstefnubreytinga sem urðu á tímabilinu er niðurstaðan tvíþætt. Aðildarsinnuð stefna var mótuð innan flokksins eftir yfirgripsmikið grasrótarstarf sem stóð yfir á árunum 2001-2009. Sú umræða sem þá hafði farið fram innan flokksins var upplýst, opinská og lýðræðisleg þar sem allir fletir málsins voru kannaðir. Umræðan leiddi til þess að margir efasemdamenn innan flokksins breyttu afstöðu sinni í jákvæða átt gagnvart hugsanlegri aðild Íslands að ESB. Hin aðildarfælna Evrópustefna Framsóknarflokksins átti rót sína að rekja til kröftugra andmæla nýrrar forystusveitar flokksins gegn Icesave samningunum. ESB varð fljótlega í Icesave umræðunni skotspónn margra andstæðinga samninganna og virðist sem sú umræða hafi leitt til aukinnar ESB efahyggju íslensks almennings sem kristallaðist í málflutning nýrrar forystu Framsóknarflokksins. Túlka má niðurstöðurnar á þann hátt að ólík aðferðafræði hafi einkennt stefnubreytingarnar. Sú fyrri kom frá grasrótinni en sú síðari frá flokksforystunni án samskonar umræðu og fór fram í hinni fyrri stefnumótun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristján Snæbjörnsson 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20612
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20612

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristján Snæbjörnsson 1982-. Umpólun í Evrópumálum : Evrópustefna Framsóknarflokksins. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20612