Abstract
dc:description.abstractVerkefni þetta fjallar um bæjarhátíðir á Norðurlandi. Slíkum hátíðum hefur fjölgað mjög á undanförnum árum en litlar rannsóknir farið fram á tilurð þeirra og fyrirkomulagi. Rannsókn þessi var unnin árið 2010 og tók til hátíða á Norðurlandi, allt frá Hólmavík í vestri og austur að Mývatni. Sendur var spurningalisti til forsvarsmanna 29 bæjarhátíða og svöruðu samtals 25. Með spurningakönnunni er leitast við að skoða fyrirkomulag og stýringu bæjarhátíða, tilgang þeirra og framtíðarhorfur. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að hátíðir séu mikilvægur þáttur í menningarlífi margra staða á Norðurlandi, að hönnun hátíða megi bæta og að aðkomu styrktaraðila sé áfátt. Vinna við undirbúning lendir á herðum fárra og erfitt sé að fá sjálfboðaliða til starfa. Margar hátíðir hafa fest sig í sessi og aðsókn eykst jafnt og þétt þó veður setji stundum stórt strik í reikninginn. Lykilhugtök: Hátíðir, bæjarhátíðir, viðburðir, menningarviðburðir, viðburðastjórnun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Skúli Gautason 1959-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/20608
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/20608