Abstract
dc:description.abstractMarkmið verkefnisins er að sýna fram á mikilvægi rýmis og næðis vinnustofunnar. Til að vinnustofan eigi sér tilveru þarf að vera rými og skilningur á mikilvægi þess næðis sem hún veitir til sköpunar. Mikilvægt er að vernda næði listamanna til sköpunar innan samfélagsins vegna þess að það virði (kapítal) sem þar skapast er samfélagslega mikilvægt. Menningarvirðið virðist ekki alltaf vera jafn auðgreinanlegt og virði beinharðra peninga en það byggir á annars konar auðmagni sem er mótandi afl og ein af undirstöðum samfélagsins. Auðmagn má jafnframt greina í nokkra flokka sem styður við þá kenningu að listin skapi virði. Varpað er ljósi á þetta mikilvægi með ýmsum heimspekilegum og verufræðilegum kenningum og myndklíkingum um rými, virði, vald og aðgreiningu frá ýmsum heimspekingum og félagsfræðingum. Niðurstöður samkvæmt aðferðum grundaðrar kenningar eru byggð á þemum sem voru dregin út úr gögnunum. Þar sem um fjölbreytilegt og einstaklingsbundið rannsóknarefni er að ræða, leiðir rannsóknin ekki að einni niðurstöðu, heldur fremur líkt og í etnógrafískum rannsóknum, er leitast við að greina og túlka mynstur innan hópsins. Rannsóknin byggir á viðtölum við átta myndlistarmenn inni á vinnustofum þeirra og unnið var eftir eigindlegri aðferðafræði; grundaðri kenningu, etnógrafíu og aðleiðslu, sem byggð er á félagslegri mótunarkenningu. Í umræðukafla eru helstu niðurstöður ræddar og virðist hafa myndast vísir að nýjum skilningi á mikilvægi vinnurýmisins og að það er ekki einungis eiginlegt rými heldur mörg marglaga rými. Tekist var á við verkefnið innan frá; bottom-up. Samfélagið þarf á vinnu listamanna að halda til þess að geta þróast og þroskast sem menningarlegt nútímaþjóðfélag.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hanna Margrét Einarsdóttir 1973-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/20603
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/20603