Back to search

Bifröst University

Barnamenningarhátíð í Reykjavík : viðhorf og hugmyndir stjórnenda í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkur um Barnamenningarhátíð í Reykjavík

Abstract

dc:description.abstract

Í þessu verkefni er ætlunin að gera grein fyrir könnun á viðhorfi stjórnenda í skóla- og frístundastarfi í Reykjavík til Barnamenningarhátíðar í Reykjavík. Hugtakið barnamenning er skoðað ásamt þeim stefnum sem hafa verið í gangi í málefnum barnamenningar. Þessum hluta er ætlað að skilgreina hugtök og fræði á bakvið rannsóknina. Gerð var megindleg spurningakönnun meðal stjórnenda í skóla- og frístundastarfi í Reykjavík og unnið úr niðurstöðum þeirrar könnunar. Niðurstöður könnunarinnar benda til að stjórnendur í skóla- og frístundastarfi í Reykjavík séu mjög jákvæðir í garð hátíðarinnar. Þeir líta á hátíðina sem tækifæri fremur en kvöð og telji þátttöku sinnar stofnunar mikilvæga. Eins komu fram margar hugmyndir um hvernig þróa megi hátíðina þannig að hún nái betur til allra. Þátttakendur í könnuninni komu ítrekað fram með þá athugasemd að hátíðin þyrfti að færast meira út í hverfin. Könnunin var unnin í samvinnu við Höfuðborgarstofu og stjórn Barnamenningarhátíðar. Hátíðin er sífelldri þróun og gestir og þátttakendur virðast líta á hátíðina sem hvatningu og stuðning við barnamenningu. Tilgangur könnunarinnar var að styðja við þróun hátíðarinnar og gefa stjórn hátíðarinnar tækifæri til að kynnast hugmyndum og viðhorfi hjá einum stærsta hagsmunaaðila hátíðarinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Særós Rannveig Björnsdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20600
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20600

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Særós Rannveig Björnsdóttir 1982-. Barnamenningarhátíð í Reykjavík : viðhorf og hugmyndir stjórnenda í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkur um Barnamenningarhátíð í Reykjavík. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20600