Bifröst University
Bætur vegna líkamstjóns : útreikningur skaðabóta vegna líkamstjóns
Abstract
dc:description.abstractMeð ritgerð þessari er leitast við að færa efni 1. til 16. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, um bætur fyrir líkamstjón, úr textaformi yfir í reikniformúlur. Með því að setja útreikning bóta upp í reikniformúlur vonast höfundur til þess að auðvelda öðrum útreikning bóta fyrir tímabundið atvinnutjón, þjáningar, varanlegan miska og varanlega örorku, sem leiða má af líkamstjóni tjónþola. Í upphafi ritgerðarinnar er lauslega skýrt frá tilgangi skaðbótalaga og mikilvægustu hugtökum er varða útreikning bóta fyrir líkamstjón. Í framhaldinu er greint frá ýmsum grundvallarforsendum til að reikna fjárhæð skaðabóta. Því næst er sýnt fram á útreikning skaðabóta fyrir bótaliði, þ.e. fyrir tímabundið atvinnutjón, þjáningar, varanlegan miska, og varanlega örorku. Í kjölfarið er farið yfir atriði sem hafa áhrif á bótafjárhæð, til dæmis vexti og eigin sök tjónþola. Loks eru dregnar saman niðurstöður ritgerðarinnar. Segja má að niðurstöður ritgerðarinnar séu tvenns konar: annars vegar eru teknir saman útreikningar bótaliða og þeir settir upp og sundurliðaðir í samræmi við markmið skaðabótalaga en hins vegar tekur höfundur saman þau ákvæði fyrsta kafla laganna, sem mætti mögulega endurskoða til að veita skýrari hugmyndir um hvernig heimfæra skuli texta laganna í útreikningi. Samhliða ritgerð þessari var tekið saman skjal í Excel, sem teljast má hluti niðurstöðunnar. Verkefnið í heild er því ritað fremur með tilliti til hagnýts gildis en fræðilegs.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigtryggur Arnþórsson 1984-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/20550
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/20550