Back to search

Bifröst University

Hvaða markaðsaðferðir eru lítil og meðalstór ferðaþjónustufyrirtæki að tileinka sér þegar kemur að markaðssetningu á netinu til að ná til erlendra ferðamanna?

Abstract

dc:description.abstract

Erlendum ferðamönnum til landsins er búið að vera að fjölga umtalsvert á síðustu árum og gera spár ráð fyrir því að sú mikla fjölgun muni halda áfram á næstu 2-3 árum. Koma ferðamanna til landsins er mun meiri en gengur og gerist annarsstaðar í heiminu og gera spár ráð fyrir því að sú mikla fjölgun sem á sér stað í dag muni dala og vera í takt við þær tölur sem ganga yfir heiminn. Þetta verða ferðaþjónustufyrirtæki að nýta sér því staðan þeirra á markaðnum hefur aldrei verið eins sterk og hún er nú. Það er mun auðveldara fyrir þau að ná til ferðamanna sem að hyggja á ferðir með markaðassetningu á Internetinu eins og með leitarvélabestun eða samfélagsmiðlum á borð við Facebook og Twitter. Leitarvélabestun er mikilvægt markaðstól fyrir ferðaþjónustufyrirtækin til notkunnar því það hjálpar fyrirtækjunum að koma síðunum sínum á framfæri þegar ferðamenn eru að leita að upplýsingum tengdum ferðaþjónustu. Ef að síður hjá fyrirtækjunum koma ekki upp ofarlega má búast við því að þeir ferðamenn sem eru að skoða notist við einhver önnur fyrirtæki sem að eru ofar en þau. Samfélagsmiðlarnir eru einnig mjög mikilvægir til markaðssetningar og til þess að eiga í samskiptum við viðskiptavini og væntanlega viðskiptavini því auðvelt ætti að vera fyrir þá að hafa samskipti við fyrirtækið varðandi einhverjar upplýsingar í gegnum síðurnar. Markmiðið með þessari könnun sem gerð var, var að sjá hvort að ferðaþjónustufyrirtæki væru að markaðssetja sig á Internetinu og hvaða markaðsaðferðir þau væru að notast til þess.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ólöf Ragna Guðnadóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20544
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20544

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ólöf Ragna Guðnadóttir 1982-. Hvaða markaðsaðferðir eru lítil og meðalstór ferðaþjónustufyrirtæki að tileinka sér þegar kemur að markaðssetningu á netinu til að ná til erlendra ferðamanna?. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20544