Back to search

Bifröst University

Hefur notkun og eftirfylgni frammistöðumats áhrif á starfsánægju starfsmanna?

Abstract

dc:description.abstract

Frammistöðumat er lítill en mikilvægur hluti mannauðsstjórnunar. Matinu er ætlað að mæla frammistöðu starfsmanna, finna út hvort, hvar og hvernig skuli bæta úr henni ásamt því að fylgjast með og stuðla að aukinni starfsþróun. Matið á að vera hvetjandi og upplýsandi auk þess sem starfsmenn eiga að fá tækifæri til að tjá sig. Höfundi fannst áhugavert að rannsaka það hvort tengsl væru á milli frammistöðumats og starfsánægju. Í þessari rannsókn er leitast við að svara rannsóknarspurningunni „Hefur notkun og eftirfylgni frammistöðumats áhrif á starfsánægju starfsmanna?“ Notast var við tvær rannsóknaraðferðir, eigindlega aðferð í formi viðtala og megindlega aðferð í formi spurningakönnunar. Viðtöl voru tekin við stjórnendur nokkurra ólíkra fyrirtækja og spurningakönnun send út á alla starfsmenn þeirra. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að bæði notkun og eftirfylgni frammistöðumats hafi jákvæð áhrif á starfsánægju. Þrátt fyrir að eftirfylgni hafi jákvæð áhrif á starfsánægju þá telja bæði stjórnendur og starfsmenn að hægt sé að bæta hana töluvert.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Erna Þórdís Kristinsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20542
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20542

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Erna Þórdís Kristinsdóttir 1989-. Hefur notkun og eftirfylgni frammistöðumats áhrif á starfsánægju starfsmanna?. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20542