Back to search

Bifröst University

Kostnaður og viðhorf vegna búsetu hælisleitenda í Reykjanesbæ

Abstract

dc:description.abstract

Hælisleitendur hafa verið mikið í umræðunni undanfarin ár vegna mikillar fjölgunar á umsóknum hérlendis, og þá sérstaklega í Reykjanesbæ þar sem það var eina bæjarfélagið til loka ársins 2013 sem sá um að þjónusta hælisleitendur. Nú hefur verið gerður samningur við Reykjavíkurborg sem tók gildi 1. janúar 2014. Tilgangur þessarar rannsóknar er að skoða hver kostnaðurinn er við uppihald hælisleitenda í Reykjanesbæ og framkvæma jafnframt könnun á meðal íbúa í Reykjanesbæ, sem og á höfuðborgarsvæðinu til samanburðar, til að kanna hversu mikið íbúar vita um kostnaðinn og hvað þeir ætli að hælisleitendur séu í raun að fá til ráðstöfunar. Einnig var spurt út í viðhorf og vitneskju íbúa á málefninu. Settar voru fram tvær tilgátur. Tilgáta 1: „Íbúar Reykjanesbæjar halda að kostnaður vegna hælisleitenda sé meiri en raun ber vitni“. Tilgáta 2: „Viðhorf íbúa Reykjanesbæjar í garð hælisleitenda er neikvætt“. Niðurstöður leiddu í ljós að bæði íbúar Reykjanesbæjar og höfuðborgarsvæðisins telja að hælisleitendur fái mun meira til ráðstöfunar á mánuði en raun ber vitni. Viðhorf íbúa í Reykjanesbæ er í heildina neikvætt, þeir eru ekki sáttir við búsetu hælisleitenda í bæjarfélaginu og telja þá mjög áberandi. Túlka má niðurstöðurnar sem svo að vegna þess hve lítið bæjarfélagið er þá séu hælisleitendur mun meira áberandi en á höfuðborgarsvæðinu þar sem þeir falla betur í fjöldann. Eins hafa þeir verið mun lengur í þjónustu á Suðurnesjum, þeim fjölgað ört á síðustu árum og því hafa þeir verið meira áberandi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhanna María Jónsdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20540
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20540

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhanna María Jónsdóttir 1990-. Kostnaður og viðhorf vegna búsetu hælisleitenda í Reykjanesbæ. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20540