Back to search

Bifröst University

Samspil valdheimilda forseta Íslands og ráðherra í lögum nr. 33/1944 Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

Abstract

dc:description.abstract

Samskipti forseta Íslands og ráðherra hafa á undanförnum árum ekki alltaf verið til fyrirmyndar. Allt frá því að stjórnarskrá lýðveldisins Íslands tók gildi hafa verið deilur um hvert eiginlegt stjórnskipulegt hlutverk forsetans er, en margir fræðimenn eru þeirrar skoðunar að völd hans séu einungis formlegs eðlis. Þar að lútandi sé það ráðherra sem fari með öll þau völd sem kveðið er á um í stjórnarskránni og snúa að forseta Íslands. Ekki verður frá því vikið að þegar kemur að heimild forseta til að synja lögum sé staðfesting á þeim valdheimildum sem forseti einn fer með og reynt hefur á að þar sé engin þörf á atbeina ráðherra. Getur verið að valdheimildir forseta og ráðherra samkvæmt ákvæðum stjórnarskrárinnar séu hvorki völd forseta né ráðherra heldur sé þar um að ræða valdheimildir sem forseti og ráðherra deila og ákvarða um í sameiningu. Rýnt verður í ákvæði laga og skrif fræðimanna á valdheimildum forseta og ráðherra er varðar túlkun þeirra ákvæða er kveða á um valdheimildir framangreindra aðila og þá aðallega í ákvæðum stjórnarskrár lýðveldisins Íslands. Í ritgerð þessari verða gerð ítarleg skil á valdheimildum forseta Íslands og ráðherra er þeim er veitt samkvæmt ákvæðum laga nr. 33/1944 Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Þá verður farið yfir hvernig samspil valdheimilda forseta og ráðherra birtast í framangreindum lögum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hafsteinn Sverrisson 1972-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20371
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20371

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hafsteinn Sverrisson 1972-. Samspil valdheimilda forseta Íslands og ráðherra í lögum nr. 33/1944 Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20371