Back to search

Bifröst University

Greiðsluaðlögun einstaklinga skv. lögum nr. 101/2010 : skilyrði sem skuldari þarf að uppfylla og þær aðstæður sem geta komið í veg fyrir að greiðsluaðlögun verði heimiluð

Abstract

dc:description.abstract

Hér á landi hafa verið til staðar ýmis úrræði til handa skuldurum sem eiga við greiðsluvanda að etja. Í kjölfar efnahagshrunsins haustið 2008 þótti brýnt að bregðast við þeim vanda sem mörg heimili stóðu frammi fyrir með því að lögfesta reglur um greiðsluaðlögun einstaklinga. Slíkt úrræði hafði verið til staðar á Norðurlöndunum allt frá árinu 1984. Við lagasetninguna var sérstaklega litið til norsku laganna um greiðsluaðlögun og byggjast íslensku lögin að miklu leyti á þeim. Í ritgerðinni er fjallað almennt um greiðsluaðlögun og aðdragandann að setningu laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga. Sérstaklega er fjallað um þau skilyrði sem einstaklingar þurfa að uppfylla til þess að umsókn þeirra um greiðsluaðlögun fáist samþykkt, sbr. 2. gr. laganna. Einnig er fjallað um þær aðstæður sem geta verið til staðar og koma í veg fyrir að greiðsluaðlögun verði heimiluð, sbr. 6. gr. laganna. Ákvæði laganna eru á margan hátt matskennd og því hefur framkvæmdin mótast að mörgu leyti í meðförum dómstóla og kærunefndar greiðsluaðlögunarmála. Til þess að varpa ljósi á hvernig ákvæðum laganna hefur verið beitt í framkvæmd er notast við dóma Hæstaréttar, úrskurði kærunefndar greiðsluaðlögunarmála, norskan rétt og aðrar lögfræðilegar heimildir sem eiga við efnið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristín María Stefánsdóttir 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19108
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19108

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristín María Stefánsdóttir 1974-. Greiðsluaðlögun einstaklinga skv. lögum nr. 101/2010 : skilyrði sem skuldari þarf að uppfylla og þær aðstæður sem geta komið í veg fyrir að greiðsluaðlögun verði heimiluð. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19108