Abstract
dc:description.abstractFjármálalæsi er frekar nýtt orð í íslensku tali og ekki hafa margar bækur eða greinar verið skrifaðar um það. Í dag hefur aftur á móti orðið mikil vitundarvakning um það að leggja þurfi áherslu á aukið fjármálalæsi hjá nemum í grunn- og framhaldsskólum. Leggja þarf áherslu á að kenna nemendum aukið fjármálalæsi og bæta þarf kennslu til handa kennurum í kennslu í fjármálalæsi. Það að geta fyllt út skattframtal sitt og að vita hvað það er að taka lán s.s smálán. Hvað kostar að taka lán, hvaða lán eru hagstæðust og hvert á að snúa sér við lántökur? Einnig þarf að leggja á það áherslu að allt ungt fólk og sem flestir viti hvaðan erlendur gjaldeyrir kemur og hvernig hans er aflað. Það að fara í bankann og kaupa gjaldeyri er ekki eins sjálfsagt og það virðist vera. Gott væri að allir vissu hvert ferlið er við öflun gjaldeyris áður en hann kemst í skúffur gjaldkera í bönkum. Rannsóknin, sem gerð var við ritgerðarsmíð þessa, er til þess fallin að reyna að komast að því hvort og þá hve færir háskólnemar eru í fjármálalæsi. Rannsókn eins og skýrsluhöfundur framkvæmir hefur hefur ekki áður verið framkvæmd hér á landi. Rannsóknin er um fjármálalæsi hjá nemendum í viðskiptafræði í íslenskum háskólum. Við gerð ritgerðarinnar hefur höfundur ekki rekist á greinar þar sem fjármálalæsið er einskorðað við gjaldeyrislæsi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sóley Soffaníasdóttir 1966-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/19063
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/19063