Back to search

Bifröst University

Er Akranes að nýta þau tækifæri sem felast í aukningu á fjölda ferðamanna

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um hvort Akranes sé að nýta þau tækifæri sem felast í fjölda ferðamanna. Straumur ferðamanna hingað til lands hefur aukist gífurlega undanfarin ár og er ferðaþjónusta á Íslandi orðin 2-3. stærsta atvinnugrein landsins. Ferðamennirnir sem koma til Íslands sækjast eftir því að fá að skoða, upplifa og njóta óspilltrar náttúrunnar og alls sem hún hefur upp á að bjóða ásamt því að vilja kynna sér sögu landsins. Akranes er fallegur bær sem hefur úr mörgu að spila til að mynda Langisandur sem tengir bæinn við sjóinn og allt sem hann hefur upp á að bjóða. Farið var í að gera upp Akranesvita til að bjarga verðmætum en eftir að Akranesviti var opnaður fyrir ferðamönnum kom í ljós að hann virkar sem mikið aðdráttarafl. Tekin voru viðtöl við aðila í ferðaþjónustu og rekstraraðila á Akranesi ásamt því að send var spurningarkönnun á 3 aðila. Tilgangurinn var að fá innsýn í ferðaþjónustu á Akranesi og Hveragerði. Eftir að hafa farið í gegnum þessa rannsókn telur höfundur að niðurstaðan liggi skýrt fyrir en að mati höfundar er Akranes ekki að nýta öll tækifærin sem felast í aukningu á fjölda ferðamanna. Fyrstu skrefin í uppbyggingu á ferðamannaþjónustu Akraness hafa verið stiginn en bærinn hefur ekki náð almennri fótfestu sem ferðamannabær.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ylfa Guðný Sigurðardóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19044
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19044

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ylfa Guðný Sigurðardóttir 1982-. Er Akranes að nýta þau tækifæri sem felast í aukningu á fjölda ferðamanna. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19044