Back to search

Bifröst University

Gjaldtaka á börnum : hvers vegna skilgreina einkafyrirtæki, stofnanir og hið opinbera, börn á annan hátt en löggjafinn þegar kemur að gjaldskrargerð?

Abstract

dc:description.abstract

Í lokaverkefni þessu mun höfundur leitast við að rannsaka hvers vegna einkafélög, sveitarfélög og hið opinbera skilgreina börn á skjön við löggjafann þegar kemur að gjaldskrágerð. Fyrri hluti ritgerðar fer í að skoða löggjafann sem setur lög og reglurgerðir um börn og þær stofnanir sem vinna að bættum réttindum barna á Íslandi. Farið verður í öll helstu lagasöfn sem snúa að réttindum barna og unglinga og skoðað hvort að ekki sé samræmi í þeim þegar kemur að því að skilgreina hvernær barn telst vera barn samkvæmt lögum. Seinni hluti ritgerðarinnar fer í að skoða gjaldskrár flugfélaga, kvikmyndahúsa, sundlauga og skíðasvæða og hvers vegna þessi fyrirtæki notast við sínar eigin gjaldskrár þegar kemur að börnum en er ekki skylt að fara eftir skilgreiningu löggjafans. Í lokin er farið í skattskyldu barna, húsaleigubætur og skólastyrki fyrir börn og hvernig starfsreglur í kringum þá þætti eru á skjön við þau lög sem skilgreina börn sem börn til 18 ára aldurs. Skemmst er frá því að segja að það er ekkert í löggjafanum sem meinar fyrirtækjum og stofnunum að vinna gjaldskrár sínar eftir sínum eigin vinnureglum og eru þau ekki bundin við nein lög né reglugerðir frá löggjafanum til að miða þær við lögræðisaldur. Sveitarfélögum er meðal annars gefin heimild í lögum um sveitarfélög að stjórna sínum gjaldskrám sjálf.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Júlía Guðmundsdóttir 1975-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18941
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18941

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Júlía Guðmundsdóttir 1975-. Gjaldtaka á börnum : hvers vegna skilgreina einkafyrirtæki, stofnanir og hið opinbera, börn á annan hátt en löggjafinn þegar kemur að gjaldskrargerð?. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18941