Bifröst University
Makríldeila Íslands og ESB : takmarka ákvæði EES-samningsins aðgerðir af hálfu ESB?
Abstract
dc:description.abstractÍsland hefur átt í deilu við önnur ríki er viðkemur nýtingu á makrílstofni þeim er hefur heiðrað land og þjóð með nærveru sinni við Íslandsstrendur undanfarin ár. Þeir þjóðréttaraðilar sem deila eru umfram Ísland, Noregur, Færeyjar og Evrópusambandið. Í fyrstu var ákveðin samstaða um skiptingu aflahlutdeildar á milli fárra ríkja. Öll ríkin hafa hins vegar undanfarin ár gefið út kvóta einhliða, án þess að samstaða sé varðandi slíka úthlutun. Eins og deilunni er háttað í dag snýst hún einna helst um skiptingu aflahlutdeildar, og eðli máls samkvæmt liggur engin niðurstaða fyrir hvað varðar sameiginlega aflaúthlutun fyrir árið 2014. Evrópusambandið setti fram í september árið 2012 reglugerð sem er til þess fallin að veita sambandinu heimild til þess að beita ákveðnum úrræðum gegn því ríki sem stundar veiðar á stofnum (öllum þeim víðförulum fiskstofnum) með óábyrgum hætti. Með tilkomu skýrslu ICES í október 2013 um ástand makrílstofnsins glæddist andrúmsloftið á fundum ríkjanna og ríkir meiri bjartsýni en áður. Mikið óöryggi ríkir þó enn í samskiptum ríkjanna, bæði hvað varðar deiluna sjálfa sem og beitingu þeirra úrræða sem Evrópusambandið hefur sett fram á undanförnum misserum. Umfjöllunarefni ritgerðarinnar er á sviði Evrópuréttar, en við vinnslu ritgerðarinnar voru skoðuð lögskýringargögn og rit fræðimanna ásamt skýrslum opinberra stofnanna í þeim tilgangi að varpa ljósi á það hvort takmarkanir væru vegna EES-samningsins á heimild Evrópusambandsins til aðgerða gegn Íslandi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Aðalsteinn Egill Traustason 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/17491
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/17491