Back to search

Bifröst University

Réttarstaða erlendra sakborninga : með áherslu á rétt þeirra til dómtúlks

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að skoða aðkomu dómtúlka að sakamálum ásamt því að skoða hvaða úrræði dómstólar hafa ef réttur sakborninga til dómtúlks er ekki virtur og hvaða afleiðingar það hefur fyrir dómsmál. Ákvæði stjórnarskrárinnar og Mannréttindasáttmála Evrópu voru skoðuð og ákvæði sakamálalaga. Samanburður var gerður á ákvæðum er varða aðkomu dómtúlka á Íslandi, Danmörku,Noregi og Svíþjóð. Dómaframkvæmd dómstóla á Íslandi og Mannréttindadómstóls Evrópu var skoðuð út frá efni ritgerðarinnar. Niðurstaðan var sú að margt má bæta til að réttur sakbornings til dómtúlks sé fullkomnlega vitur. Einnig gætir misræmis á milli íslenskra dómstóla og Mannréttindadómstóls Evrópu er varðar þýðingu á mikilvægum gögnum. Uppbygging ritgerðarinnar er á þann veg að í fyrsta kafla er fjallað um lagaumhverfi er snýr að réttarstöðu sakborninga. Í öðrum kafla er fjallað ítarlega um réttláta málsmeðferð og dómar reifaðir með tilliti til efnisins. Í þriðja kafla er fjallað um réttarstöðu sakborninga og réttindi og skyldur þeirra. Í fjórða kafla er fjallað um dómtúlka og hlutverk þeirra ásamt lögum og reglum tengdum dómtúlkum í sakamálum. Í fimmta kafla er löggjöf Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar skoðuð og borin saman við löggjöfina á Íslandi ásamt því að dómar eru reifaðir með tilliti til umfjöllunarinnar. Í sjötta kafla eru dómar sem fallið hafa á Íslandi og hjá Mannréttindadómstól Evrópu reifaðir ítarlega og dregnar ályktanir af þeim. Að lokum eru svo dregnar saman niðurstöður ritgerðarinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lee Ann Maginnis 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/17467
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/17467

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lee Ann Maginnis 1985-. Réttarstaða erlendra sakborninga : með áherslu á rétt þeirra til dómtúlks. 2014. http://hdl.handle.net/1946/17467