Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er skoðuð staða, ábyrgð og hlutverk forsætisráðherra. Segir í 17. gr. Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, að forsætisráðherra sé sá, sem forseti lýðveldisins hefur hvatt til forsætis. Með stöðu, hlutverk og ábyrgð forsætisráðherra í huga, voru skoðuð helstu lög sem tengjast viðfangsefninu og ber þá helst að nefna núgildandi stjórnarskrá lýðveldisins og lög um Stjórnarráð Íslands nr. 115/2011. Nýleg skýrsla nefndar um endurskoðun laga um Stjórnarráð Íslands var höfð til hliðsjónar. Til samanburðar við íslenska löggjöf var skoðuð löggjöf í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Kom í ljós að staða forsætisráðherra er mikilvæg, forsætisráðherra gegnir stóru hlutverki og ábyrgð hans er mikil. Í ritgerðinni er fyrst farið yfir grunnatriði í stjórnskipun Íslands. Næst er farið almennt yfir stöðu, hlutverk og ábyrgð forsætisráðherra. Þá er farið yfir helstu efni þar sem forsætisráðherra hefur sérstaka stöðu, ákveðið hlutverk eða ber ábyrgð á. Í lokin er skoðað hvað sé líkt og hvað sé ólíkt með stöðu, ábyrgð og hlutverki forsætisráðherra á Íslandi borið saman við Danmörku, Noreg og Svíþjóð.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ragna Sigurlaug Ragnarsdóttir 1966-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/16889
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/16889