Back to search

Bifröst University

Viðskiptahugmynd : Hvaða möguleika hefur nýtt gistiheimili í Reykjanesbæ?

Abstract

dc:description.abstract

Vinsældir Íslands og mikil aukning erlendra ferðamanna til landsins hefur haft góð áhrif og skapað mörg ný atvinnutækifæri og hafa smáfyrirtæki í ferðaþjónustu verið í örum vexti. Verkefnið gekk út á að skoða viðskiptahugmynd með opnun nýs gistiheimilis í Reykjanesbæ. Framkvæmd var samkeppnisgreining en hún fólst í því að skoða gististaði í Reykjanesbæ og var gerður samanburður á verði og þjónustustigi. Tölur í ferðaþjónustu voru einnig til skoðunar þar sem horft var á fjölgun ferðamanna, gististaða og nýtingu gistinótta. Gerð var kostnaðaráætlun og fjármagnsþörf en einnig var settur upp rekstrarreikningur til að gera grein fyrir framtíðarmöguleika gistiheimilis. Miðað við niðurstöður þá er varhugavert að stofna fyrirtæki ef fjárhagsþörf er mikil og ber að líta svo á að stofnendur slíkra fyrirtækja þurfa að huga betur að þeirri áhættu sem farið er út í ef tekjur ná ekki að standa undir kostnaði. Mikil aukning hefur verið á gistingu í Reykjanesbæ en skýringin liggur í nálægð gististaða við flugvöll, verð eru lægri en á Stór-Reykjavíkursvæðinu og gististaðir og sér í lagi heimagisting er að fá mjög góðar umsagnir fyrir þjónustu sem er persónulegri heldur en hjá stærri gistiheimilum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigrún Björgvinsdóttir 1960-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16848
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16848

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigrún Björgvinsdóttir 1960-. Viðskiptahugmynd : Hvaða möguleika hefur nýtt gistiheimili í Reykjanesbæ?. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16848