Back to search

Bifröst University

Rannsóknar- og eftirlitshlutverk Alþingis og breska þjóðþingsins : þáttur þeirra í þingeftirliti

Abstract

dc:description.abstract

Meginmarkmið þessarar ritgerðar er að gera grein fyrir hlutverki eftirlits- og rannsóknarnefnda Alþingis og breska þjóðþingsins og þætti þeirra nefnda við þingeftirlit. Umfjöllun og samanburður um starfshætti nefnda þessara þjóðþinga þótti áhugaverð sökum langrar hefðar þingeftirlits í Bretlandi og eins vegna þess að í Bretlandi, líkt og á Íslandi, tíðkast ákveðin átakastjórn. Með nýlegum breytingum á þingskapalögum hér á landi er í fyrsta sinn kveðið á um þingeftirlit í lögum. Þá hefur kerfi fastanefnda Alþingis verið endurskipulagt og hlutverki þeirra breytt nokkuð. Eins er kveðið á um upplýsinga- og sannleiksskyldu ráðherra í lögunum. Þessar breytingar, auk setningar laga um rannsóknarnefndir og breytinga á verklagsreglum fastanefndanna hafa styrkt lagaumhverfi þingeftirlits mjög og er það nú eins gott og á verður kosið. Stjórnskipun Bretlands er um margt ólík þeirri íslensku en nefndarstarf gegnir miklu hlutverki í störfum þingsins. Þar fylgir hver fastanefnd þingsins samsvarandi ráðuneyti, fylgist með störfum þess og veitir því aðhald. Gagnlegt getur reynst að kanna störf eftirlits- og rannsóknarnefnda þessa tveggja þjóðþinga, hlutverk þeirra við þingeftirlit og bera saman, þó ólík séu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bergþóra Rúnarsdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16166
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16166

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bergþóra Rúnarsdóttir 1982-. Rannsóknar- og eftirlitshlutverk Alþingis og breska þjóðþingsins : þáttur þeirra í þingeftirliti. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16166