Back to search

Bifröst University

Bolungarvík : að breyta þorpi í þjóðbraut : tengsl menningartengdrar ferðaþjónustu, sjávarþorpa og samfélagsfrumkvöðla

Abstract

dc:description.abstract

Þessi 30 eininga ritgerð, „BOLUNGARVÍK, - að breyta þorpi í þjóðbraut“, er til meistaraprófs í Menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst. Ritgerðarefnið er valið vegna áhuga á samfélagi og sögu Bolungarvíkur og framtíðarmöguleikum íbúanna þar. Það kann að vera álitamál að gera að fræðilegu umfjöllunarefni eitthvað sem er svo stór og persónulegur hluti af manni sjálfum. Ég er fædd og uppalin í Bolungarvík, flutti þaðan 16 ára og flutti til baka fertug. Æskan og uppvöxturinn, saga foreldra og forfeðra með móðurmjólkinni, gleði og sorgir samfélagsins á mörgum sviðum á mínum líftíma, áhyggjur af framvindu og framtíð, – allt er þetta persónulegt og stór hluti af mínu eigin lífi og lífsgildum. Löngunin til að reyna að hafa áhrif, finna leiðir, skapa ný tækifæri og færa rök fyrir nýsköpun og mikilvægi frumkvöðla í fjölbreyttri uppbyggingu, eru megin drifkrafturinn í þessum skrifum. Leitað er raunhæfra dæma annarsstaðar frá þar sem tekist hefur að snúa vörn í sókn í samfélögum þar sem atvinnuvegir hafa hrunið og samfélög tekið frumkvöðla með nýjar hugmyndir í sátt. Leitað er í smiðju fræðimanna á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu, skoðuð er barátta jaðarsvæða í öðrum löndum, viðruð er ný hugmyndafræði um uppbyggingu samfélaga og fjallað um einkenni frumkvöðla og samfélagsfrumkvöðla. Allt er þetta gert til að færa rök fyrir því að Bolungarvík eigi sér sannarlega bjarta framtíð ef rétt er á málum haldið með breyttum viðhorfum, öflugra samstarfi bæjarbúa, pólitískra yfirvalda (bæjaryfirvöld og ríkisvald) og forstöðumanna fyrirtækja og stofnana, við frumkvöðla. Með breyttri hugsun, yfirlýstri stefnu, skapandi vinnuaðferðum, samvinnu við samfélagsfrumkvöðla og virkri og almennri þátttöku og samtakamætti íbúa, geta Bolvíkingar aukið aftur samfélagsauð sinn og hafið nýja upp-byggingu á samfélaginu til framtíðar. (Soffía Vagnsdóttir, 2013). Niðurstöður rannsóknar minnar sýna að það er raunhæfur möguleiki á að Bolungarvík geti aftur orðið eitt af framsæknustu þorpum landsins með blandaða nýsköpunarstarfsemi sem bæði tengist nýjum tækifærum í sjávarútvegi en ekki síst menningartengdri ferðaþjónustu byggðri á menningarsögu og menningararfi Bolungarvíkur. Viðmælendur mínir og þeir sem tóku þátt í könnun í tengslum við skrifin staðfesta með svörum sínum að rauði þráðurinn til að ná fram breytingunum er samstaða, jákvæðni, virk þátttaka og frumkvæði íbúa til þess að hafa áhrif á þróun bolvísks samfélags. Svör þeirra renna stoðum undir þá kenningu sem gengið er út frá í þessum skrifum, – að með breyttri hugsun, yfirlýstri stefnu, skapandi vinnuaðferðum og virkri þátttöku geta Bolvíkingar aukið aftur samfélagsauð sinn og hafið nýja uppbyggingu á samfélaginu til framtíðar. Mikilvægt er að auka umræðu um mikilvægi samfélagsfrumkvöðla og hlusta á þá.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Soffía Vagnsdóttir 1958-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16130
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16130

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Soffía Vagnsdóttir 1958-. Bolungarvík : að breyta þorpi í þjóðbraut : tengsl menningartengdrar ferðaþjónustu, sjávarþorpa og samfélagsfrumkvöðla. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16130