Back to search

Bifröst University

Völd, ábyrgð og áhrif : siðferði fjármálalífsins í aðdraganda bankahrunsins

Abstract

dc:description.abstract

Í kjölfar efnahagshrunsins varð þverpólitísk samstaða um að framkvæmd yrði allsherjar rannsókn á atriðum tengdum efnahagshruninu. Lagt var fram frumvarp á Alþingi þess efnis, en formenn allra stjórnmálaflokka voru flutningsmenn þess. Stefnt var að því að rannsóknin varpaði ljósi á þá ábyrgð sem þeir báru sem störfuðu að þessum málum. Átti þetta bæði við um forsvarsmenn fjármálafyrirtækja og embættismenn. Í frumvarpinu var sérstaklega vikið að starfsháttum og siðferði í fjármálalífinu. Í ritgerð þessari fjallar höfundur almennt um kenningar og aðferðir viðskiptasiðfræði annars vegar og um umfjöllun rannsóknarnefndar Alþingis hins vegar. Rannsóknarspurning ritgerðarinnar er: ,,Í hverju fólust brestir í viðskiptasiðferði stjórnenda í fjármálalífinu í aðdraganda bankahrunsins, í ljósi skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og viðurkenndra fræðikenninga í viðskiptasiðfræði?“ Að mati höfundar var almennur siðferðisbrestur í fyrirtækjum eitt af helstu vandamálum þjóðarinnar í aðdraganda efnahagshrunsins. Í ritgerðinni nefnir höfundur til sögunnar fjölmörg raunveruleg dæmi um ákvarðanir stjórnenda sem standast enga skoðun, þegar þeim er stillt upp að mælistiku viðskiptasiðfræðinnar. Höfundur telur að brestir í viðskiptasiðferði stjórnenda í fjármálalífinu í aðdraganda bankahrunsins hafi verið margvíslegir og alvarlegir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Unnar Steinn Bjarndal 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14189
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14189

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Unnar Steinn Bjarndal 1981-. Völd, ábyrgð og áhrif : siðferði fjármálalífsins í aðdraganda bankahrunsins. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14189