Back to search

Bifröst University

Hagkvæmni rafbíla á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Rafbílar eru einn af framtíðarfararkostum í heiminum. Með því að rafvæða bílaflota þá er hægt að minnka mengun töluvert. Einnig er rekstrarkostnaður og viðhaldskostnaður rafbíla mun minni en hefðbundinna bensín og dísel bíla. Flestir bílaframleiðendur eru byrjaðir að fókusera á að framleiða rafbíla og mun þróunin einungis vera jákvæð á næstu misserum og árum og mun eftirspurnin aukast eftir rafbílum. Tilgangur þessa verkefnis er að kanna hvort að rafbílar séu hagkvæmur kostur fyrir Íslendinga og hvernig skuli markaðssetningu þeirra háttað. Skoðaðir verða ýmsir þættir varðandi rafbíla og bornir saman við hefðbundna bensín og díselbíla, saga þeirra skoðuð, samkeppnisaðilar rafbíla í framtíðinni. Þá verður kannað hvernig hægt er að markaðssetja rafbíla á Íslandi, SVÓT greining verður framkvæmd og 4 p´s of marketing módel verður greint. Niðustöður verkefnisins sýna að rafbílar eru klárlega mjög vænn kostur fyrir Íslendinga í framtíðinni en þó eru ýmsar hindranir sem að þarf að yfirstíga til þess að rafbílavæðing verði að veruleika. Stjórnvöld á Íslandi hafa stigið stórt skref með því að fjarlægja virðisaukaskatt og vörugjöld tímabundið. Þá er kynntir möguleikar í niðurstöðum um það hvernig er hægt að markaðssetja rafbíla, en niðurstöðurnar eru þær að ekki er nægilega mikil umfjöllun um rafbíla og vitneskja fólks er ekki nægilega góð enn sem komið er um rafbíla og þarf að bæta það eigi rafbílavæðing að verða að veruleika. Mat höfundar er að rafbílar og aðrir grænir bílar eru framtíðin. Rafbílar munu aukast hægt og rólega í umferðinni og miðað við þá kosti sem að Ísland hefur upp á að bjóða varðandi raforkuframleiðslu þá gætu rafbílar vel verið leiðandi valkostur í grænni rafbílabyltingu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jón Þorbjörn Jóhannsson 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14181
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14181

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jón Þorbjörn Jóhannsson 1982-. Hagkvæmni rafbíla á Íslandi. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14181