Back to search

Bifröst University

Hæfis og hæfnismat við val á umsækjendum um embætti dómara við hæstarétt

Abstract

dc:description.abstract

Í lokaverkefni þessu eru til skoðunar lagaákvæði, reglur, lögskýringargögn og aðrir þættir er í heild mynda umgjörð þeirrar málsmeðferðar sem mat á hæfi- og hæfni umsækjanda um embætti hæstaréttardómara byggir á við skipun í embætti hæstaréttardómara. Í ritgerðinni er ferlið við skipun í embætti hæstaréttardómara eins og það er í dag skoðað en einnig skoðað hvernig það var fyrir breytingar sem gerðar voru á dómstólalögum árið 2010. Einnig eru reifaðar hugmyndir fræðimanna um réttarríki og þann grundvöll sem óhlutdrægir, sjálfstæðir dómstólar byggja á. Aðkoma ráðherra sem veitingarvaldshafa að skipunarferlinu er sérstaklega skoðuð og farið yfir samspil laga, reglna, veitingarvaldshafa og dómnefndar sem skipuð er samkvæmt dómstólalögum og hefur það hlutverk að veita umsögn um hæfni þeirra umsækjenda um embætti hæstaréttardómara, sem samkvæmt niðurstöðu ráðherra uppfylla hin almennu hæfisskilyrði dómstólalaga. Í ritgerðinni eru skoðuð öll hin almennu hæfisskilyrði sem dómaraefni þurfa að uppfylla og þau hæfnisskilyrði sem fyrrgreind dómnefnd byggir mat sitt á. Einnig eru skoðaðar tillögur Stjórnlagaráðs að ákvæðum er varða skipun í embætti hæstaréttardómara, í nýju frumvarpi til stjórnskipunarlaga sem afhent var forseta Alþingis 29. júlí 2011. Í niðurstöðukafla eru svo dregnar ályktanir um hvaða þættir í skipunarferlinu, er tengjast mati á hæfi og hæfni umsækjenda, megi færa til betri vegar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gizur Sigurðsson 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14111
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14111

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gizur Sigurðsson 1973-. Hæfis og hæfnismat við val á umsækjendum um embætti dómara við hæstarétt. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14111