Back to search

Bifröst University

Landlæknir og öflun persónugreinanlegra upplýsinga á grundvelli 7. gr. laga nr. 41/2007

Abstract

dc:description.abstract

Eftirlit með heilbrigðisþjónustu er mikilvægur hluti af starfi landlæknis, en hann hefur oft í tengslum við eftirlitshlutverk sitt krafist þess af starfsmönnum heilbrigðisstofnana að þeir sendi persónugreinanlegar upplýsingar um sjúklinga á grundvelli 7. gr. laga nr. 41/2007 um landlækni og lýðheilsu. Þegar í ljós kom að gallaðir PIP-brjóstapúðar hefðu verið notaðir á Íslandi krafðist landlæknir þess að lýtalæknar sendu embætti hans persónugreinanlegar upplýsingar um þær konur sem fengið höfðu ígrædda brjóstapúða á nokkurra ára tímabili. Lýtalæknar leituðu álits Persónuverndar sem gaf út leiðbeinandi svar þess efnis að landlækni væri ekki heimilt að krefjast upplýsinganna. Með þessu leiðbeinandi svari Persónuverndar myndaðist nokkur réttaróvissa um heimildir landlæknis til upplýsingaöflunar vegna eftirlits þegar kemur að persónugreinanlegum upplýsingum og fjallar þessi ritgerð um hinar ýmsu hliðar þeirrar réttaróvissu. Fjallað er ítarlega um svör Persónuverndar og þau lagalegu skilyrði sem þurfa að vera fyrir hendi til að vinnsla persónugreinanlegra upplýsinga sé heimil. Gerð er grein fyrir helstu réttarheimildum og lögskýringarsjónarmiðum sem gilda við mat á heimildum landlæknis til að krefjast slíkra upplýsinga auk þess sem litið er til mögulegra úrlausna á þeirri réttaróvissu sem ríkir um heimildir landlæknis.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Baldur Karl Magnússon 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14104
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14104

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Baldur Karl Magnússon 1989-. Landlæknir og öflun persónugreinanlegra upplýsinga á grundvelli 7. gr. laga nr. 41/2007. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14104