Back to search

Bifröst University

Hverastrýturnar í Eyjafirði : náttúrutengd köfunarferðaþjónusta og köfunarkennsla

Abstract

dc:description.abstract

Í Eyjafirði eru tvo hverastrýtusvæði, annað er staðsett undan bænum Ystuvík í Grýtubakkahreppi og hitt er undan Arnarnesi í Hörgárbyggð. Neðansjávarhverastrýtur er að finna víðs vegar um heim en það sem gerir hverastrýturnar í Eyjafirði sérstakar er að þær eru á grunnsævi og einu hverastrýturnar í heiminum sem hægt er að kafa að. Strýturnar í Eyjafirði þykja af þessum sökum einstakar og með áhugaverðustu köfunarstöðunum á Íslandi. Sævör ehf. er köfunarþjónustufyrirtæki sem sinnir hvorttveggja náttúrutengdri köfunarferðaþjónustu og köfunarkennslu og hefur aðsetur á Hjalteyri við Eyjafjörð. Erlendur Bogason, kafari, aðaleigandi Sævarar ehf. fann stóru hverastrýtuna við Ystuvík árið 1998. Erlendur hefur stundað rannsóknir á dýra- og plöntulífi á og við strýturnar ásamt því að stuðla að því á sínum tíma að fá þær friðlýstar. Þær eru einu friðuðu náttúruminjarnar í hafi við Ísland. Viðskiptaáætlun þessi gengur út á að markaðssetja hverastrýturnar í Eyjafirði sem aðal köfunarstaði fyrirtækisins. Íslenskir og erlendir fjölmiðlar hafa leitað til Sævarar ehf. og birt fréttamyndir af strýtunum og starfsemi fyrirtækisins í netmiðlum, í tímaritum og sjónvarpi. Viðskiptahugmyndin gengur meðal annars út á að nýta þessa umfjöllun til þess að auglýsa strýturnar, fyrirtækið og starfsemi þess. Rekstrarforsendur byggja á stuttri rekstrasögu Sævarar ehf. á þessum sviðum þjónustunnar og gera ráð fyrir hóflegri aukningu viðskiptavina til fyrirtækisins frá ári til árs. Niðurstöður fjárhagsáætlunarinnar sýna að hugmyndin er arðbær þar sem eignafjárstaðan er stígandi út stefnumótunartímabilið. Þar sem markmið viðskiptaáætlunarinnar er, að treysta starfsvettvang Erlendar Bogasonar með því að efla þá þætti þjónustunnar sem snúa að köfunarkennslu og náttúrutengdri köfunarferðaþjónustu, má segja að það nái fram að ganga

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Breiðfjörð Sigurðardóttir 1961-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14087
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14087

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Breiðfjörð Sigurðardóttir 1961-. Hverastrýturnar í Eyjafirði : náttúrutengd köfunarferðaþjónusta og köfunarkennsla. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14087