Back to search

Bifröst University

Endurskoðunarvald dómstóla á stjórnvaldsákvörðunum á sviði opinbers starfsmannaréttar

Abstract

dc:description.abstract

Lengi var það skoðun fræðimanna að dómstólar gætu ekki hreyft við stjórnvaldsákvörðunum sem væru háðar frjálsu mati stjórnvalda og til að mynda var ekki talið að dómstólar gætu skorið úr um hvort hæfasta umsækjandanum hefði verið veitt staða. Fáar stjórnvaldsákvarðanir eru jafn matskenndar og ákvarðanir í opinberum starfsmannarétti um hvern skuli ráða í starf eða hvenær segja skal upp starfsmanni. Sjónarmiðin sem búa að baki þeirri skoðun að dómstólar skuli ekki hrófla við mati stjórnvalda í opinberum starfsmannarétti grundvallast á kenningunni um þrígreiningu ríkisvaldsins og eðli skipunarvalds ráðherra eða, eftir atvikum, yfirmanna einstakra stjórnvalda sem vegna nálægðar við viðkomandi stofnanir eru taldir hæfastir til að meta hvaða kostum starfsmenn eigi að búa yfir. Dómstólar hafa úrskurðarvald um hvort að ákvarðanir stjórnvalda séu bæði efnislega og formlega lögmætar, á grundvelli 60. gr. stjórnarskrárinnar. Á undanförnum áratugum hefur þó mikil þróun átt sér stað á sviði stjórnsýsluréttar sem leitt hefur til þess að stjórnvöld verða að taka mið af sífellt fleiri meginreglum við ákvarðanir sínar. Verður í þessari ritgerð farið yfir sögu endurskoðunarvalds dómstóla og athugað hvort og þá hversu langt dómstólar ganga í að endurskoða stjórnvaldsákvarðanir á sviði opinbers starfsmannaréttar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hjalti Brynjar Árnason 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14084
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14084

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hjalti Brynjar Árnason 1983-. Endurskoðunarvald dómstóla á stjórnvaldsákvörðunum á sviði opinbers starfsmannaréttar. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14084