Back to search

Bifröst University

Siðmenning í voða? upphafning Vesturlanda í verkum Nialls Ferguson

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerðin fjallar um sagnfræðinginn Niall Ferguson og hugmyndir hans um yfirburði Vesturlanda sem m.a. má finna í bókinni Civilization. The West and the Rest sem kom út í marsmánuði 2011. Litið verður yfir feril Fergusons bæði sem sagnfræðings og sem fræðimanns í sjónvarpi, en þeir sjónvarpsþættir sem hann stýrir eru ætlaðir sem innleg í samtímaumræðu. Einnig verður rýnt í aðferðarfræði „hvað ef sögu“ en hún er sú aðferðarfræði sem Ferguson hefur haldið mest á lofti. Sýnt verður fram á hvernig verk hans endurspegla ákveðin íhaldsöm viðhorf sem hann er talsmaður fyrir og hvernig hann notar söguna til þess að halda fram ágæti þeirra. Civilization verður borin saman við verk annarra höfunda sem hafa fjallað um svipað efni en nálgun þessara verka eru mjög ólík. Þá verður bent á hvernig Ferguson reynir að útskýra flókna hluti í sögunni með einföldum skýringum sem á endanum gefa lesendum skakka mynd af henni. Því verður haldið fram að með því að stilla menningarheimum sem andstæðum hvers annars, líkt og Ferguson gerir í bók sinni, er verið að spila inn á aldagamla hatursorðræðu. Að lokum verður tekin saman umræðan um námskrárgerð sögu í Bretlandi en Ferguson hefur spilað stórt hlutverk í henni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Páll Guðmundsson 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13491
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13491

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Páll Guðmundsson 1981-. Siðmenning í voða? upphafning Vesturlanda í verkum Nialls Ferguson. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13491