Back to search

Bifröst University

Greining og samanburður á íslenskum og þýskum húsnæðismarkaði

Abstract

dc:description.abstract

Fasteignaverð á Íslandi tvöfaldaðist að raungildi frá byrjun þessarar aldar fram til miðsumars 2007. Húsnæðisverð hafði þá hækkað gríðarlega á flestum fasteignamörkuðum í Evrópu en tók svo að lækka í kjölfar þeirrar fjármálakreppu sem hófst síðsumars 2007 þegar verðgildi undirmálslána til fasteigna tók að falla í Bandaríkjunum og fasteignaverð í kjölfarið. Húsnæðisverð hrundi á Íslandi og hefur lækkað um 35% að raungildi með tilheyrandi afleiðingum fyrir heimilin í landinu. Mikið hefur verið ritað um þetta efni að undanförnu, en minna farið fyrir tillögum að úrbótum á uppbyggingu íslenska húsnæðismarkaðarins. Höfundur mun því, auk greiningar á orsökum og afleiðingum þessa verðþróunnar á Íslandi, varpa ljósi á sérstöðu þýska húsnæðismarkaðarins þar sem stöðugleiki hefur verið viðvarandi í langan tíma. Lítið sem ekkert virðist hafa verið ritað um þýska húsnæðismarkaðinn hér á landi. Fræðigrunnur ritgerðarinnar byggir á kenningum hagfræðinnar um lögmál framboðs og eftirspurnar auk kenninga er snúa að uppbyggingu markaða og fjármögnun og rekstri eigna almennt. Samkvæmt niðurstöðum greiningar höfundar er íslenski húsnæðismarkaðurinn ekki sjálfbær og rekja megi stöðugleika þýska markaðarins til kerfisbundinna ástæða sem ná allt aftur til seinni heimsstyrjaldarinnar og svo þeirra breytinga sem áttu sér stað á húsnæðismarkaði í kjölfar sameiningar Austur- og Vestur Þýskalands árið 1990.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Heiðar Lár Halldórsson 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13468
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13468

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Heiðar Lár Halldórsson 1978-. Greining og samanburður á íslenskum og þýskum húsnæðismarkaði. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13468