Bifröst University
Lífshlaupið og Hjólað í vinnuna : áhrif heilsu- og hvatningarverkefna Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands á þátttakendur
Abstract
dc:description.abstractÍþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur á undan förnum árum lagt áherslu á að hvetja almenning til að stunda reglubundna hreyfingu með fjölbreyttum verkefnum. Heilsu- og hvatningaverkefnið Hjólað í vinnuna rúllaði af stað árið 2003 en Lífshlaupið hófst árið 2008. Þátttaka í þessum verkefnum hefur margfaldast frá upphafi. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Lífshlaupið og Hjólað í vinnuna, hafi áhrif á hreyfingu og ferðamáta þátttakenda. Gögnin sem voru notuð í þessari rannsókn eru fengin úr spurningakönnun sem send var til þátttakenda Lífshlaupsins og Hjólað í vinnuna árið 2011. Niðurstöður benda til þess að þátttaka í heilsu- og hvatningarverkefnum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hefur áhrif á hreyfingu og ferðamáta þátttakenda. Þátttaka í Lífshlaupinu og Hjólað í vinnuna hefur hvetjandi áhrif á þátttakendur til að auka sína hreyfingu og nota virkan ferðamáta. Þátttakendur hreyfðu sig meira og notuðu virkan ferðamáta oftar á meðan að þeir tóku þátt í verkefnunum og niðurstöður benda til þess að þeir hafi haldið því áfram nokkrum mánuðum eftir þátttöku. Rannsóknin sýnir að heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Lífshlaupið og Hjólað í vinnuna, eru öflug lýðheilsutæki sem skila árangri.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóna Hildur Bjarnadóttir 1967-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/12694
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/12694