Back to search

Bifröst University

Lýðræðið handan þjóðríkisins : stjórnarskrártryggð og Evrópusambandið

Abstract

dc:description.abstract

Í þessu verki hefur verið skoðað hvort stjórnarskrártryggð geti nýst til þess að lýðræðisvæða Evrópusambandið. Í því samhengi hafa kenningar um lýðræði og þjóðernishyggju verið sérstaklega til skoðunar. Lýðræði hefur verið skoðað í samhengi frjálslynds fulltrúalýðræðis en þjóðernishyggjan út frá stöðu þjóðríksins. Einnig hefur verið farið yfir evrópusamrunann og hvernig lýðræðisleg ákvarðanataka hefur birst í honum. Hugmyndin um frjálslynt fulltrúalýðræði hefur verið ráðandi á Vesturlöndum en samhliða þeirri hugmyndafræði hefur þjóðernishyggja verið mikil áhrifavaldur á þjóðríkið. Sýnt hefur verið fram á að nauðsynlegt sé að horfa á þessar hugmyndir í nýju ljósi ef samræða á milli þjóða Evrópusambandsins á að eiga sér stað, en það er forsendan fyrir því að skoðanamyndun eigi sér stað og þannig gætu ákvarðanir sem teknar eru hjá Evrópusambandinu öðlast aukið lögmæti. Í evrópusamrunanum var í upphafi ekki lögð mikil áhersla á þátttöku almennings, sem skýrir að einhverju leyti áhugaleysi almennings um að vera þátttakendur í evrópskri umræðu. Þjóðernishyggjan hefur verið sterkt stjórnmálalegt afl í ríkjum álfunnar en í ritgerðinni er bent á að þjóðríkið á við vandmál að stríða sérstaklega í ljósi hnattvæðingar. Sjálfsmynd einstaklinga þarf að taka breytingum til þess að þeir geti verið þátttakendur í stjórnmálalegri umræðu á milli þjóða Evrópusambandsins, það er líka forsenda fyrir því að opinber vettvangur geti myndast. Stjórnarskrártryggð, sem leggur áherslu á hefðir, venjur og framkvæmd lýðræðislegrar ákvarðanatöku, gæti verið tæki sem Evrópusambandið notast við til þess að komast að lýðræðislegum niðurstöðum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hlöðver Ingi Gunnarsson 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12688
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12688

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hlöðver Ingi Gunnarsson 1985-. Lýðræðið handan þjóðríkisins : stjórnarskrártryggð og Evrópusambandið. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12688