Bifröst University
Erfiðleikar Framsóknar í þéttbýli : hvers vegna gengur Framsóknarflokknum illa að afla sér fylgis í þéttbýli?
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um hvers vegna Framsóknarflokknum hefur gengið illa að afla sér fylgis í þéttbýlustu kjördæmunum þremur og er sjónum hennar sérstaklega beint að tímabilinu 1999-2007. Í ritgerðinni er farið yfir sögu flokksins með áherslu á þau tímabil sem mikilvæg kunna að vera umfjöllunarefninu. Þá er fylgisþróun flokksins skoðuð og rýnt betur í kosningaúrslit hans. Fjallað er um hugmyndafræði flokksins svo betur megi átta sig á fyrir hvað hann stendur og hvaða grundvallarstefnu hann hefur sett sér. Þá er sagt frá álitum fræðimanna og annarra málsmetandi einstaklinga um í hverju vandamál flokksins er fólgið. Teknir eru saman samnefnarar þeirrar orðræðu og að því loknu gerð tilraun til að sannreyna það sem í þeim felst. Niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að ástæðum þess að Framsóknarflokknum gengur illa að afla sér fylgis í þéttbýli megi skipta í þrennt. Í fyrsta lagi fór flokkurinn út fyrir eigin hugmyndafræði í tilraunum sínum til að auka fylgi sitt í stóru kjördæmunum þremur og færðist til hægri á hinum pólitíska væng. Sú færsla hefur haft fráhrindandi áhrif á þá sem hingað til hafa kosið hann vegna hinnar sannkallaðrar Framsóknarstefnu félags- og umbótahyggju. Í öðru lagi virðist hann hafa færst svo langt til hægri að nefnt hefur verið að vart sé sjáanlegur munur á stefnu hans og stærsta stjórnmálaflokki landsins, Sjálfstæðisflokknum. Ljóst er að slík hugmyndafræðileg tilfærsla verður erfið hvaða stjórnmálaflokki sem er. Í þriðja lagi er slík tilfærsla Framsóknarflokknum sérstaklega erfið í kjördæmum höfuðborgarsvæðisins ef eini sjáanlegi munur hans og Sjálfstæðisflokksins er stefna hans um jafnvægi í byggð, byggðamál og gegn byggðaröskun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Leó Ingi Leósson 1977-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/10983
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/10983