Back to search

Bifröst University

Atkvæðaréttur í veiðifélögum

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um atkvæðarétt í veiðifélögum samkvæmt 40. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði. Sérstaða atkvæðaréttarins liggur í þeirri meginreglu að hver félagsmaður hefur eitt atkvæði fyrir hvert lögbýli sem hann ræður yfir óháð því hversu stóra hlutdeild hann á í tekjum, gjöldum og eignum veiðifélagsins. Fjallað er um sögu og tilurð ákvæðisins og viðhorf manna á mismunandi tímum til atkvæðaréttarins. Ákvæðið er borið saman við reglur eignaréttar, hvort það skerði eignarétt manna að vægi atkvæða og áhrif innan veiðifélaga fari ekki saman við eign og kostnaðarhlutfall. Ákvæðið er líka borið saman við reglur félagaréttar og þá sérstaklega rétt manna til að standa utan félaga, það er neikvætt félagafrelsi samanber 2. mgr. 74. gr. stjórnarskrárinnar og 11. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Haraldur Júlíusson 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10967
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10967

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Haraldur Júlíusson 1964-. Atkvæðaréttur í veiðifélögum. 2012. http://hdl.handle.net/1946/10967