Back to search

Bifröst University

Barnamenningarhús : andleg öndunarvél? : er nauðsynlegt að setja á stofn sérstakt hús undir barnamenningu?

Abstract

dc:description.abstract

Þessi rannsókn fjallar um stöðu barnamenningar á Íslandi, einkum hvort þörf sé á sérstöku barnamenningarhúsi. Ef svo er hvert eigi hlutverk og markmið þess að vera. Ritgerðin byggir að mestu á viðtölum við átta einstaklinga sem vinna að barnamenningu, eru frumkvöðlar á sínu sviði eða hafa verið virkir í umræðu um stofnun barnamenningarhúss. Skýrsla Sigurðar Valgeirssonar Á að stofna barnamenningarhús á Íslandi? sem unnin var fyrir Samtök um barnamenningarstofnun og kom út í júní 2004 var höfð til hliðsjónar við ritunina. Hugmyndir fólks um hlutverk barnamenningarhúss eru misjafnar, margir telja að barnamenningarhús eigi fremur að vera afþreyingarhús fyrir fjölskyldur meðan aðrir einblína á faglegt starf hússins og þann stuðning sem það getur veitt barnamenningu. Þar með er komið að kjarna ritgerðarinnar, að rannsaka hvers konar barnamenningarhúsi er þörf á. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að mikil þörf sé á stofnun barnamenningarhúss. Nú þegar er barnamenningu vel sinnt af fjölmörgum aðilum en þrátt fyrir það fer lítið fyrir hlutverki barnamenningar í menningarstefnu ríkisins. Hún kemur fyrir í menningarstefnu Reykjavíkur og Akureyrar en hún þyrfti að vera mun fyrirferðarmeiri. Það er samdóma álit allra viðmælenda að barnamenningarhús á ekki að taka frá því sem nú þegar rennur til barnamenningar. Hlutverk þess á miklu frekar að vera styðjandi og hefja barnamenningu vel upp á æðra plan með faglegu starfi sínu og samstarfi við þá sem þegar sinna barnamenningu. Þá er gott að hafa í huga menningarstefnur annarra norrænna þjóða þar sem þeirra stefna er að börn eigi skilið það besta og börn eigi að njóta þess besta.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eðvald Einar Stefánsson 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10960
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10960

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eðvald Einar Stefánsson 1973-. Barnamenningarhús : andleg öndunarvél? : er nauðsynlegt að setja á stofn sérstakt hús undir barnamenningu?. 2012. http://hdl.handle.net/1946/10960