Back to search

Bifröst University

"Afskræmd spegilmynd" af stjórnmálum : gagnrýni Besta flokksins á ríkjandi stjórnmálafyrirkomulag

Abstract

dc:description.abstract

Framboð Besta flokksins til borgarstjórnarkosninganna vorið 2010 fól í sér harða gagnrýni á ríkjandi stjórnmálaumhverfi, en hann kom fram sem viðbragð við því vantrausti sem ríkti á stjórnmálasviðinu í kjölfar efnahagshrunsins haustið 2008. Flokkurinn, undir forystu leikarans og grínistans Jóns Gnarrs, beitti gríni, íroníu og háði í kosningabaráttu sinni til að varpa ljósi á ágalla hinna hefðbundnu starfshátta íslenskra stjórnmála, sem hann sagði einkennast af „valdabaráttu, yfirborðsmennsku og hroka“. Hann staðsetti sig gegn hugmyndafræðinni sem pólitíska fjórflokkakerfið grundvallast á og kallaði eftir breytingum á kerfinu. Í þessari ritgerð er birtingarmynd Besta flokksins á pólitíska sviðinu skoðuð út frá kenningum um hugmyndafræði. Reynt er að varpa ljósi á flókin tengsl ráðandi hugmyndafræði við ríkjandi öfl annars vegar og mótspyrnuöfl hins vegar, og færð rök fyrir því hvernig Besti flokkurinn fellur inn í ráðandi hugmyndafræði átakapólitíkur þrátt fyrir að hann staðsetji sig gegn hugmyndafræði ríkjandi afla samfélagsins. Þá er sjónum beint að því hvernig flokkurinn beitti íroníu í gagnrýni sinni á ríkjandi skipulag og því haldið fram að þrátt fyrir íronískt viðhorf og framkomu þá hafi sjónarmið Besta flokksins og vilji til breytinga verið einlæg. Áherslur og afstaða flokksins er einnig greind út frá kenningum anarkismans og sýnt fram á að jafnvel þó þar megi sjá tengsl við anarkísk viðhorf þá getur hann ekki flokkast sem anarkísk hreyfing enda gangi hann gegn grundvallaratriði anarkismans með því að samþykkja valdstöðu sína eftir kosningasigurinn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eva Hafsteinsdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10538
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10538

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eva Hafsteinsdóttir 1981-. "Afskræmd spegilmynd" af stjórnmálum : gagnrýni Besta flokksins á ríkjandi stjórnmálafyrirkomulag. 2012. http://hdl.handle.net/1946/10538