Back to search

Bifröst University

Eftirgjöf skulda og tekjuhugtak 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt : telst eftirgjöf skulda til skattskyldra tekna?

Abstract

dc:description.abstract

Umræður um skattlagningu eftirgjafar skulda hafa verið áberandi nú á síðustu árum og þá einna helst í tengslum við afleiðingar efnahagshrunsins á fjárhag manna og fyrirtækja. Gildandi tekjuskattslög nr. 90/2003 hafa að geyma undanþáguákvæði vegna skattlagningar eftirgjafar skulda en skattlagningarheimildina er að finna í tekjuhugtaki 7. gr. laganna. Ritgerð þessi fjallar um þær skattlagningarreglur sem í gildi eru varðandi eftirgjöf skulda, hvort eftirgjöf skulda teljist til skattskyldra tekna skv. tekjuhugtaki skattalaganna og hvernig sú niðurstaða samræmist framkvæmdinni í dönskum rétti. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar er að til skattskyldra tekna telst eignaauki sem myndast vegna eftirgjafar skulda og gildir það jafnt um menn og lögaðila. Við mat á því hvort og hver fjárhæð eignaaukans er, og þá skattskyldra tekna, þá skal taka mið af gangvirði hinnar eftirgefnu kröfu á þeim tíma sem hún var gefin eftir. Sú niðurstaða í samræmi við eldri framkvæmd í dönskum rétti, en þá byggðist skattlagningin á svipuðu tekjuhugtaki og er að finna í núgildandi tekjuskattslögum nr. 90/2003. Í dag er skattlagningarheimild vegna eftirgjafar skulda í dönskum rétti að finna í sér ákvæði danskra laga og byggir því ekki á hinu almenna tekjuhugtaki líkur og áður fyrr. Ekki er slíkri skattlagningarheimild fyrir að fara í íslenskum rétti og byggist skattlagning eftirgjafar skulda því á tekjuhugtaki 7. gr. tekjuskattslaganna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Aldís Olga Jóhannesdóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10333
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10333

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Aldís Olga Jóhannesdóttir 1976-. Eftirgjöf skulda og tekjuhugtak 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt : telst eftirgjöf skulda til skattskyldra tekna?. 2011. http://hdl.handle.net/1946/10333