Back to search

Bifröst University

Frá Búsáhaldabyltingu til Stjórnlagaþings : hver eru tengslin á milli Búsáhaldabyltingarinnar og Stjórnlagaþings?

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um tengsl búsáhaldabyltingarinnar, sem átti sér stað veturinn 2008-2009 og stjórnlagaþings. Í ritgerðinni er farið stuttlega yfir sögu stjórnarskrárinnar og breytingar á henni ásamt því að skoðaðar eru ástæður þess að ekki sé búið að framkvæma heildar endurskoðun á henni líkt og ávallt hefur staðið til. Farið er yfir „kröfur búsáhaldabyltingarinnar“ eins og þær birtust í ræðum og greinaskrifum veturinn 2008-9 og leitað svara við því hvernig hugmyndin um stjórnlagaþing varð fyrir valinu til að skapa ákveðna samfélagssátt. Einnig er skoðað hvað stjórnlagaþing er ásamt því hvert helsta hlutverk þess sé, hvaða þætti stjórnarskrárinnar á að endurskoða og hvaða áhrif útkoma þess mun mögulega geta haft á þróun í næstkomandi Alþingiskosningum. Niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að tengsl búsáhaldabyltingarinnar og stjórnlagaþings séu ekki eins skýr og oft hefur verið haldið fram. Krafan um stjórnlagaþing var sem slík ekki ein af helstu kröfum búsáhaldabyltingarinnar, heldur var hugmyndinni öðru fremur haldið á lofti af stjórnmálamönnum, fremur en almenningi, og má leiða að því líkum að hugmyndin um stjórnlagaþing hafi verið tilraun stjórnvalda til að ná fram einhverskonar sáttum við þjóðina. Almenningur tók ekki eins vel í hugmyndina eins og í fyrstu var áætlað, en kjörsókn í stjórnlagaþingskosningunum var í algeru lágmarki og hefur aldrei áður verið eins lítil þátttaka í kosningum hér á landi. Ef stjórnlagaþing var ein af aðalkröfum búsáhaldabyltingarinnar má gera ráð fyrir því að kjörsókn hefði verið betri. Hugsanlega má útskýra áhugaleysi á kosningunum með því að almenningur hafi aldrei lagt höfuðáherslu á að haldið yrði stjórnlagaþing heldur hafi aðalkröfur snúið að efnahagslegum aðstæðum í þjóðfélaginu. Stjórnlagaþingið sem varð stjórnlagaráð var þó hugsað til að mynda sátt við almenning, og var ætlað að framkvæma löngu tímabæra endurskoðun stjórnarskráarinnar sem hefur staðið til að framkvæma frá því að lýðveldisstjórnarskráin var tekin í gildi árið 1944.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Einar Franz Ragnars 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10046
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10046

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Einar Franz Ragnars 1985-. Frá Búsáhaldabyltingu til Stjórnlagaþings : hver eru tengslin á milli Búsáhaldabyltingarinnar og Stjórnlagaþings?. 2011. http://hdl.handle.net/1946/10046