Back to search

Bifröst University

Málefnalegar ástæður fyrir uppsögn af hálfu atvinnuveitenda

Abstract

dc:description.abstract

Í lokaverkefni þessu eru til skoðunar ákvæði sem veita launþegum á almennum vinnumarkaði vernd gagnvart ómálefnalegum og órökstuddum uppsögnum af hálfu atvinnuveitanda. Ritgerðin hefst á því að skoðuð eru ákvæði íslenskra laga og kjarasamninga sem varða efnið og í framhaldi af því eru lagafrumvörp sem lögð hafa verið fram á Alþingi varðandi efnið reifuð og gerð grein fyrir afdrifum þeirra. Því næst er samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 158 skoðuð og ákvæði hennar sem varða umfjöllunarefnið rakin auk þess sem raktar eru þingsályktunartillögur sem lagðar hafa verið fram varðandi fullgildingu samþykktarinnar hér á landi og rakið hver afdrif þeirra hafa verið. Í þriðja kafla er svo farið yfir ákvæði laga og kjarasamninga í Danmörku sem varða málefnalegar ástæður fyrir uppsögn, en í Danmörku hafa þessi ákvæði verið til staðar um áratuga skeið. Skoðuð eru fordæmi dómstóla og úrskurðaraðila og í lok kaflans er gerð tilraun til að meta tvö mál sem upp hafa komið á Íslandi varðandi uppsagnir starfsmanna, með hliðsjón af regluverki á Íslandi annars vegar og í Danmörku hins vegar. Að lokum er svo lagt mat á það hvort ástæða sé til að innleiða reglur þessa efnis hér á landi og þá hvort vænlegra sé að fullgilda samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 158 eða hvort betra sé að gera eins og við Íslendingar höfum svo oft gert í gegnum árin, og fara að fordæmi Dana.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Arnar Kristinsson 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10017
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10017

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Arnar Kristinsson 1969-. Málefnalegar ástæður fyrir uppsögn af hálfu atvinnuveitenda. 2011. http://hdl.handle.net/1946/10017