Abstract
dc:description.abstractMeð þéttari byggð og aukinni bílaumferð hafa margir þéttbýlisstaðir tapað mikilvægum tenginum fyrir gangandi vegfarendur til að komast á milli svæða. Í þessu verkefni verður leitast við að svara því með hvaða hætti væri heppilegast að bæta göngutengingu á milli skrúðgarðs og hafnarsvæðis sem eru mikilvæg svæði á Húsavík. Byrjað er á því að draga saman upplýsingar um þróun bæjarins og helstu einkenni hans. Það er gert með því að skoða sögu bæjarins og skoða gamlar loftmyndir. Því næst eru mikilvæg atriði í bæjarmyndinni greind sem segja til um hvar þessi svæði eru í bænum og hvernig tengslin eru í dag. Greiningarnar segja einnig til um hvar mögulegar tengingar geta orðið og er það aðallega á tveimur stöðum, niður Árgilið og í gegnum Öskjureitinn. Út frá greiningunum eru settir fram fjórir valkostir sem bæta mundu tengingu á milli skrúðgarðs og hafnar. Frambærilegasti kosturinn er valinn á grundvelli kostamats þar sem skoðuð eru áhrif kostanna á bæjarbrag bæjarins, gæði hans, starfsemi, kostnað og lýðheilsu og kostirnir bornir saman. Í niðurstöðum kemur fram að sá kostur sem álitlegastur þykir er sá þar sem opnað er fyrir Búðarána og hún látin renna ofanjarðar í gegnum bæinn og út í sjó og göngustígur lagður meðfram henni. Í kjölfar þess eru nokkrar hönnunaráherslur settar fram sem ætti að hafa í huga við nánari útfærslu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigurdís Sveinbjörnsdóttir 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/9278
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/9278