Back to search

Agricultural University of Iceland

Áhrif tegundablöndunnar á lifun birkis

Abstract

dc:description.abstract

Birkiskógar gegna mikilvægu hlutverki í vistkerfum Íslands og eru lykilþáttur í landgræðslu á rýru og rofnu landi. Lifun birkis við slíkar aðstæður getur þó verið takmörkuð og því mikilvægt að skoða hvort tegundablöndun geti bætt árangur við skógrækt. Slík nálgun getur haft áhrif á samspil plantna, nýtingu næringarefna og þol gagnvart álagi frá umhverfi. Í þessari rannsókn var lifun ilmbjarkar (Betula pubescens) skoðuð í tilraunareitum á tveimur svæðum á Suðurlandi, annars vegar á Leiðvelli og hins vegar í Skarfanesi. Settir voru upp mismunandi tilraunaliðir þar sem birki var gróðursett í óblandaða reiti og hins vegar í tegundablandaða reiti með eftirfarandi tegundum; stafafuru, elri, jörfavíði og alaskaösp. Gagnasöfnun fór fram sumarið 2022, tveimur árum eftir gróðursetningu, þar sem fjöldi lifandi plantna var skráður í hverjum reit. Niðurstöður byggja á samanburði milli tilraunaliða og milli svæða. Helstu niðurstöður sýndu að mikill munur var á lifun plantna milli svæða. Á Leiðvelli var lifun almennt lág og birki sýndi þar minni lifun en flestar aðrar tegundir. Í Skarfanesi var lifun hins vegar mun hærri og birki reyndist þar sú tegund sem hafði hæsta lifun, ásamt elri og alaskaösp. Niðurstöður benda til þess að tegundablöndun geti haft áhrif á lifun birkis, þó áhrifin séu mismunandi eftir aðstæðum og samsetningu tegunda. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að taka mið af staðbundnum umhverfisskilyrðum við skipulagningu skógræktar. Tegundaval og tegundablöndun geta skipt máli fyrir árangur, sérstaklega á erfiðum landssvæðum, og geta stuðlað að stöðugri framvindu gróðurs og bættri nýtingu lands til lengri tíma.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hjördís Jónsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53705
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53705

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hjördís Jónsdóttir 1993-. Áhrif tegundablöndunnar á lifun birkis. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53705