Back to search

Agricultural University of Iceland

Landeldi sem landslag: Hlutverk landslagsarkitektúr í skipulagi og mótun landeldissvæða á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Uppbygging landeldis hefur á síðustu árum aukist hratt á Íslandi samhliða tækniframförum og vaxandi fjárfestingum í greininni. Nýjar landeldisstöðvar eru í mörgum tilfellum umfangsmiklar framkvæmdir sem rísa á opnum strandsvæðum þar sem stór mannvirki, regluleg byggingarform og tæknilegir innviðir verða áberandi í landslaginu. Þrátt fyrir þessa þróun hefur megináhersla í skipulagi og hönnun slíkra svæða oft verið lögð á tæknilega og rekstrarlega þætti á meðan ásýnd, upplifun og tengsl svæðanna við nærliggjandi samfélag hafa fengið minna vægi. Í þessu verkefni er fjallað um hvernig uppbygging landeldis mótar ásýnd og upplifun íslensks landslags og með hvaða hætti landslagsarkitektúr getur stuðlað að betri samþættingu slíkra mannvirkja við umhverfi sitt. Á grundvelli þessarar greiningar eru settar fram hönnunartillögur sem leitast við að draga úr sjónrænum áhrifum landeldisins og styrkja tengsl svæðisins við nærliggjandi landslag. Í tillögunum er meðal annars unnið með landslagsmótun, gróður, stígakerfi, aðgengi að strandlínu og bætta hönnun innan iðnaðarsvæðisins sjálfs. Einnig er horft til nýtingar seyru frá landeldinu sem auðlindar í uppgræðslu og landslagshönnun. Með verkefninu vill höfundur sýna fram á að uppbygging landeldis þurfi ekki sjálfkrafa að verða á kostnað landslagsgæða og upplifunar. Með markvissri og snemmbærri aðkomu landslagsarkitektúrs felast tækifæri til að þróa heildstæðari lausnir þar sem atvinnuuppbygging, útivist og gæði umhverfis geta farið saman.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Agnes Björk Stefánsdóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53680
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53680

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Agnes Björk Stefánsdóttir 1996-. Landeldi sem landslag: Hlutverk landslagsarkitektúr í skipulagi og mótun landeldissvæða á Íslandi. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53680