Agricultural University of Iceland
Þýðing og áhrif sögulegra kennileita frá fyrri hluta 20. aldar á skipulagsgerð og þróun hverfishluta í austurhluta Reykjavíkur
Abstract
dc:description.abstractRitgerðin fjallar um þýðingu og áhrif sögulegra kennileita frá fyrri hluta 20. aldar á skipulagsgerð og þróun byggðar í austurhluta Reykjavíkur. Markmiðið er að greina hvernig slík kennileiti hafa verið skilgreind, metin og nýtt við mótun skipulags og þar með þróun hverfishluta í austurhluta Reykjavíkur. Rannsóknin byggir á fjölþættri aðferðafræði sem m.a. felur í sér tilviksrannsókn á afmörkuðu svæði í austurhluta Reykjavíkur og gagnrýnni greiningu á viðeigandi stefnuskjölum, lögum og leiðbeiningum, opinberum stefnuskjölum, og skipulagsáætlunum ásamt öðrum heimildum. Niðurstöður greininga sýna fram á að söguleg kennileiti hafa að takmörkuðu leyti haft áhrif á skipulagsgerð og mótun byggðar á þessu tiltekna svæði og því eru tækifæri eru til þess að nýta menningararfinn enn frekar en nú er gert. Þá er greinilegt að mat á gildi kennileita og skilgreining hugtaksins er mismunandi og má greina að skortur er á aukinni samþættingu milli þeirra opinberu aðila sem hafa með verndun byggingararfsins að gera, annars vegar og hins vegar þeirra sem eru ábyrgir fyrir gerð skipulags og þróun byggðar. Greining opinberra stefnuskjala bendir þó til aukinnar áherslu stjórnvalda á verndun og nýtingu menningararfs í viðum skilningi hin síðari ár sem er í takt við alþjóðlega þróun og hugmyndir um nýtingu menningararfs við skipulagsgerð og mótun byggðar, en gera má betur og nýta á skilvirkari hátt þær upplýsingar sem fram koma í byggða- og húsakönnunum. Rannsóknin bendir ennfremur til þess að þörf sé á heildstæðri og samþættri nálgun við mat á sögulegum kennileitum í byggð að því marki að efla staðaranda og samlegð ólíkra tímabila í þróun byggðarinnar sem er þá tengd sögu svæðis og einkennum þess. Slík nálgun getur stuðlað að sjálfbærri þróun, auknum gæðum í borgarumhverfi og betra jafnvægi milli verndar og uppbyggingar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigríður Björk Jónsdóttir 1972-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51795
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51795