Agricultural University of Iceland
Á milli landslags og þéttleika - Samanburður á borgarskipulagi í Efra-Breiðholti og Hlíðarenda
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar ritgerðar er að skoða hvernig borgarskipulag í Reykjavík hefur þróast frá skipulagi og uppbyggingu Efra-Breiðholts á sjötta og sjöunda áratugnum til nútímalegra þróunarsvæða á borð við Hlíðarenda. Efra-Breiðholt var hannað út frá módernískum hugmyndum með áherslu á skipulagðar hverfiseiningar, aðskilnað umferðar, græn svæði og sjónrænt næði. Hlíðarendi endurspeglar aftur á móti áherslur Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 um þéttingu, gönguvæni og blandaða byggð. Greiningin byggir á fjórum greiningarþáttum: borgarform og þéttleiki, samgöngur og tengingar, opin svæði og græn innviði, og mannmiðuð hönnun og lífsgæði. Niðurstöðurnar sýna að hvor nálgun um sig hefur ákveðna styrkleika og veikleika: Efra-Breiðholt býður upp á sterka tengingu við náttúru og útivistarsvæði sem gefur mikla möguleika til sálrænnar endurheimtar en skortir félagslega virkni og fjölbreytileika; Hlíðarendi býr að hagkvæmni í landnýtingu og samgöngu tengingnum en glímir við skort á grænum tengingum og endurnærandi þáttum í umhverfinu. Með hliðsjón af samanburðargreiningu er lögð fram hönnunartillaga sem leitast við að samþætta kosti beggja skipulagsstefna með áherslu á andlega vellíðan, fjölbreytileika og aðgengi. Ritgerðinni lýkur á vangaveltum og hönnunartillögu um hvernig framtíðarskipulag Reykjavíkur geti nýtt sér reynslu fortíðar og innsýn samtímans til að skapa sjálfbærari og mannvænni borg.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ari Kristinn Gunnarsson 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 9Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51484
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51484