Back to search

Agricultural University of Iceland

Götukappakstursbraut á höfuðborgarsvæðinu - Raunhæfur möguleiki?

Abstract

dc:description.abstract

Áhugi á tímabundnum akstursíþróttakeppnum í borgum, sérstaklega Formúlu 1 og Formúlu E, hefur aukist á undanförnum árum. Markmið viðburðanna er að auka aðdáendahóp akstursíþróttarinnar með því að færa viðburðinn nær íbúum. Slíkir viðburðir geta verið hvati til breytinga í borgarskipulagi. Viðfangsefnið er mikilvægt þar sem það fjallar um samspil tímabundinna akstursíþróttaviðburða og skipulagsmála. Þessir viðburðir eru bæði tækifæri og áskoranir fyrir borgirnar. Tækifærin geta falist í möguleikum á enduruppbyggingu á borgarsvæðum og eflingu ferðaþjónustu en áskoranirnar snúa að umferðaröryggi og truflunum á daglegu lífi íbúa. Þrátt fyrir aukinn áhuga á rannsóknum á áhrifum kappakstursviðburða á borgir, hefur samspil þeirra við borgarskipulag verið lítið rannsakað. Markmið verkefnisins er að greina tækifæri og áskoranir götukappakstursbrautar á höfuðborgarsvæðinu. Skoðað er hvort, og þá hvar, mögulegt er að koma upp götukappakstursbraut á höfuðborgarsvæðinu og hver tækifæri og neikvæð áhrif slíkrar framkvæmdar eru á nærliggjandi samfélag. Verkefnið byggir á eigindlegum og megindlegum rannsóknaraðferðum þar sem heimildavinna og viðtalsrannsóknir voru notaðar til að greina tækifæri og neikvæð áhrif götukappakstursbrauta. Viðmið og kröfur Alþjóðlega akstursíþróttasambandsins (FIA) fyrir kappakstursbrautir voru greind með sérstaka áherslu á þætti sem tengjast borgarumhverfi. Viðmiðin voru síðan notuð til að greina þrjá staði (kosti) á höfuðborgarsvæðinu sem gætu hentað fyrir götukappakstursbraut. Kostirnir voru að lokum skoðaðir nánar í tengslum við tækifæri og neikvæð áhrif á nærliggjandi samfélag. Þrír staðir voru metnir hentugir fyrir götukappakstursbraut. Þeir eru: - Sæbraut – Snorrabraut – Miklabraut – Kringlumýrarbraut - Vesturlandsvegur – Suðurlandsvegur - Sæbraut – Katrínartún – Laugavegur – Kringlumýrarbraut Þeir þóttu hafa mismunandi kosti og galla en einn þeirra er talinn henta betur en hinir. Niðurstöðurnar gefa til kynna að hægt er að halda götukappaksturskeppni innan höfuðborgarsvæðisins en keppnin krefst þó viðamikla breytinga á borgarumhverfinu. Þessar breytingar tengjast enduruppbyggingu á núverandi atvinnusvæði, eflingu á flóttaleiðum til og frá höfuðborgarsvæðinu og endurbætur á samgönguinnviðum. Verkefnið sýnir að hægt er að nýta núverandi innviði í öðrum tilgangi en þeir voru upphaflega hannaðir fyrir, og að slík nýting geti haft áhrif á framtíðarskipulag borga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hugrún Harpa Björnsdóttir 1997-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50273
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50273

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hugrún Harpa Björnsdóttir 1997-. Götukappakstursbraut á höfuðborgarsvæðinu - Raunhæfur möguleiki?. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50273