Back to search

Agricultural University of Iceland

Kolefni í jarðvegi uppgræðslutilraunareita

Abstract

dc:description.abstract

Frá landnámi hefur átt sér stað mikil gróður- og jarðvegseyðing þar sem heilu vistkerfin hafa eyðst. Hafa þar ýmsir þættir haft áhrif. Skógar hafa eyðst og síðan gróðurþekja, sem leitt hefur til jarðvegsrofs, en eldfjallajarðvegur sem ríkjandi er á Íslandi hefur litla samloðun, háa vatnsleiðni og mikla vatnsrýmd sem gerir hann rofgjarnan og viðkvæman fyrir jarðvegsrofi. Einnig eru fleiri öfl sem magna upp jarðvegsrof, þ.e. loftslag og eldvirkni. Í þessari rannsókn voru tekin jarðvegssýni í uppgræðslutilraunareitum á Geitasandi, tekin voru jarðvegssýni í nokkrum reitum sem hafa þrjár uppgræðslumeðferðir, þar á meðal viðmið. Meðferðirnar eru; grassáning og áburðargjöf (gras+ábr), grassáning, áburðargjöf og birkieyjur (gras+ábr og birki) og viðmið. Markmiðið var að rannsaka kolefni í jarðvegi, athuga hvort marktækur munur væri á uppgræðslumeðferðum og athuga hvort kolefni hafi aukist frá fyrri rannsóknum á sömu tilraunareitum. Helstu niðurstöður eru þær að kolefni hefur aukist frá fyrri rannsóknum, aukingin var mismikil eftir meðferðum, en ekki var marktækur munur á milli gras+ábr og gras+ábr og birki. Hlutfall kolefnis í gras+ábr jókst úr 0,43% í 0,73% sem er mun meira en hjá gras+ábr og birki, það jókst úr 0,57% í 0,61%. Undirritaður telur að áfok hafi áhrif á kolefnisbindingu í uppgræðslutilraunareitunum, áfokið þynnir kolefni í jarðveginum, einkum birkið. Í næstu rannsóknum þyrfti að taka jarðvegssýni á meira dýpi til að fá betri mynd af kolefnisbindingunni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhann Gísli Jónsson 2000-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44850
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44850

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhann Gísli Jónsson 2000-. Kolefni í jarðvegi uppgræðslutilraunareita. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44850