Back to search

Agricultural University of Iceland

Þróun vistkerfis frá sandauðn til votlendis

Abstract

dc:description.abstract

Jöklar á Íslandi hafa að mestu leyti hopað frá lokum litlu-ísaldar en henni lauk um árið 1890. Í kjölfarið hafa jökulár smám saman fest sig í farvegi. Við meiri stöðugleika hafa vistkerfin framan við jökla þróast og jarðvegsmyndun hafist. Í þessari ritgerð verður fjallað um þróun vistkerfis á Breiðamerkursandi á Suðausturlandi. Votlendi hefur myndast á svæði sem áður var jökulsandur. Útbreiðsla votlendisins var kortlögð eftir loftmyndum, jarðvegssýni tekin innan skilgreindrar útbreiðslu og sýrustig og kolefnis- og niturhlutfall jarðvegsins mælt. Niðurstöðurnar benda til þess að mest kolefni og nitur safnast á bökkum tjarna og lækja og þar sem gul- og loðvíðir vex en að of mikil bleyta hafi hamlað uppsöfnun, líklega vegna lakari vaxtarskilyrða á þeim svæðum. Við þúfur geta víðiplöntur hjálpað til við uppsöfnun kolefnis og niturs og þar getur kolefnishlutfall mælst hátt en í sjálfri þúfunni eru vaxtarskilyrði lakari þar sem að jarðvegur eru þurrari. Rannsóknin sýndi að sýrustig jarðvegs fer lækkandi með aldrinum og að uppsöfnun kolefnis og niturs í jarðvegi eykst með aldri vistkerfisins. Útbreiðsla votlendisins á Breiðamerkursandi hefur nærri tvöfaldast á árunum 1968-2004.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Íris Ragnarsdóttir Pedersen 1995-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36049
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36049

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Íris Ragnarsdóttir Pedersen 1995-. Þróun vistkerfis frá sandauðn til votlendis. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36049