Agricultural University of Iceland
Tíðni þrýstingsáverka í munni keppnishrossa á LM 2018 og tengsl við mögulega áhættuþætti
Abstract
dc:description.abstractLandsmót hestamanna eru haldin annað hvert ár á Íslandi og er stærsti hestaviðburður landsins. Þar fara bæði fram gæðingakeppni, töltkeppni og kynbótasýningar. Samkvæmt reglugerð um velferð hrossa er mótshaldara skylt að láta fara fram heilbrigðisskoðun á öllum hrossum sem koma fram á mótinu samkvæmt reglum Matvælastofnunar sem ganga undir heitinu Klár í keppni. Niðurstöður heilbrigðisskoðana keppnishrossa frá árinu 2012 sýndu að tíðni þrýstingsáverka í munni hrossa var alvarlegt vandamál og ógn við velferð keppnihrossa. Sýnt var fram á sterk tengsl á milli áverka á kjálkabeini, sem oft voru metnir sem alvarlegir, og notkunar á stangamélum með tunguboga. Lagt var bann við notkun slíkra méla árið 2014. Þessi rannsókn er byggð á eftirlitsgögnum Matvælastofnunar frá LM 2018 og gögnum frá mótshaldara sama móts um beislisbúað. Markmið verkefnisins var að lýsa tíðni þrýstingsáverka í munni keppnishrossa sem kepptu í A-flokki, B-flokki og ungmennaflokki gæðingakeppninnar á Landsmóti hestamanna 2018 og greina mögulega áhættuþætti. Upplýsingar um beislisbúnað sem riðið var við í forkeppni og skoðun á munni hestanna fyrir milliriðil, voru lagðar til grundvallar. Rúmur helmingur hrossanna (n=52) eða um 56%, voru með áverka í munni, sem í langflestum tilfellum voru metnir sem vægir. Um helmingi hrossanna (n=49), 53%, hafði verið riðið við einhverskonar hringamél, af þeim voru 59% með skráða áverka, þar af 32% í munnvikum/kinnum og 27% á kjálkabeini. Heldur minna var um áverka hjá hrossum sem hafði verið riðið við stangir (n=42), 53%, einkum í munnvikum/kinnum (23%) en hærra hlutfall á kjálkabeini (30%). Ekki varð séð að gerð reiðmúla hefði áhrif á tíðni þrýstingsáverka í munni en flestum hestum var riðið við nasamúl/þýskan múl. Niðurstöðurnar benda til þess að tíðni alvarlegra þrýstingsáverka á kjálkabeini hafi minnkað til muna eftir að stangamél með tunguboga voru bönnuð í keppni, en tíðni vægari áverka hafi lítið breyst.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sólveig Arna Einarsdóttir 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 9Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/33490
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/33490