Back to search

Agricultural University of Iceland

Nýting á gróðurtorfum við uppgræðslu

Abstract

dc:description.abstract

Aukin áhersla hefur orðið á mikilvægi þess að endurheimta staðar- eða grenndargróður á landi sem orðið hefur fyrir raski við gerð mannvirkja. Margar rannsóknir benda til þess að flutningur á gróðurtorfum geti skilað viðunandi árangri í því sambandi. Rannsókn mín var gerð á lagnaskurði við Hellisheiðarvirkjun í ágúst 2014 og jarðvegshitamæling fór fram í nóvember sama ár. Í október 2013 hafði verið grafinn skurður frá stöðvarhúsi að gashreinsistöð. Í janúar 2014 var gengið frá þessum skurði. Um 20° C heitt vatn rennur um lagnarörið á 1 m dýpi undir yfirborði skurðarins. Þrátt fyrir að við fráganginn hafi verið hugað að því að reyna að koma í veg fyrir að hiti leitaði upp á yfirborðið mældist tveggja gráðu hitamunur á milli skurðarsvæðisins og staðargróðurs. Skurðurinn var grafinn í gegnum gróið land og einnig land sem var raskað áður en framkvæmdir hófust. Á gróna svæðinu voru gróðurtorfur settar til hliðar ásamt jarðvegi og á raskaða svæðinu var jarðveginum komið fyrir til hliðar við skurðinn. Er lögnin var komin í skurðinn og búið að moka jarðvegi yfir aftur voru gróðurtorfurnar lagðar á þann hluta skurðarins sem gróinn var áður, gagngert til að flýta fyrir uppgræðslu. Hluti svæðisins er beitarland og hluti er beitarfriðað. Rannsóknin fólst í því að bera saman svæðið ofan á lagnaskurðinum, annars vegar land sem var raskað fyrir framkvæmdir og hins vegar gróið land sem raskaðist við framkvæmdirnar og búið var að leggja torfurnar aftur á sinn stað, saman við staðargróður. Skurðinum var skipt upp í sex svæði. Hvert svæði ofan á lagnaskurðinum innihélt tvö snið, þ.e. gróðurtorfusnið og rasksnið. Samsíða þessum sniðum voru staðargróðursnið. Alls gerðu þetta sex gróðurtorfusnið (G), sex staðargróðursnið (SG), sex rasksnið (R) og sex staðargróðursnið við raskið (RS). Hvert snið var 10 m langt og metri á breidd. Fjórir gróðurrammar voru lagðir út í hvert snið. Um 11,5 metrum vestan við skurðinn voru sett út samanburðarsnið fyrir staðargróður. Gróðurþekja var mæld, tegundafjöldi greindur og samsetning gróðurs skoðuð. Jafnframt var jarðvegshiti mældur á 10 cm dýpi, bæði í skurðar- og samanburðarsniðum, til að kanna hvort hiti frá lögn bærist upp undir yfirborð. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu mikinn mun á milli sniða þar sem gróðurtorfur voru settar aftur á sinn stað og sniða sem röskuð voru fyrir framkvæmdir og gróðurtorfur voru ekki notaðar. Tegundasamsetning var á þann veg að í gróðurtorfusniðunum (G) fundust 25 háplöntutegundir og sjö mosategundir en í staðargróðursniðunum (SG) fundust 26 háplöntutegundir, sjö mosategundir og ein fléttutegund. Í staðargróðursniðum (SR) fundust 19 háplöntutegundir, sjö mosategundir og tvær fléttutegundir. Í rasksniðum fundust 13 háplöntutegundir og sjö mosategundir (tafla 2). Í rasksniðum fundust aðallega rasktegundir, svo sem vegarfi og klóelfting, og var klóelfting með mestu meðalþekjuna þar. Vegarfi var með svipaða meðalþekju í gróðurtorfusniðum og í rasksniðum. Sumar mosategundir höfðu mun hærri þekju í staðargróðri en sniðum með gróðurtorfum. Engin mosategund náði 1% þekju í rasksniðum. Þeir gróðurhópar sem mesta þekju höfðu voru grös og mosar. Algengustu grastegundir sem fundust í rannsókninni voru túnvingull, blávingull og hálíngresi og sýndu þær allar marktækan mun á meðalþekju milli staðsetninga. Athygli vakti að í gróðurtorfusniðum voru örlítið fleiri gróðurtegundir en í staðargróðri. Gróðurtorfusniðin höfðu þó ekki enn náð staðargróðrinum í gróðurþekju. Þrátt fyrir að stuttur tími hafi verið frá frágangi rannsóknarsvæðisins benda niðurstöðurnar til þess að uppgræðsla með gróðurtorfuaðferðinni hraði gróðurframvindu. Sumar tegundir voru með mjög litla þekju í ákveðnum gróðurrömmum, til dæmis fannst haugarfi aðeins í einu tilteknu sniði, og því erfitt um vik að meta hvaða tegundir töpuðust við flutninginn á gróðurtorfunum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhanna Pétursdóttir 1963-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25080
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25080

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhanna Pétursdóttir 1963-. Nýting á gróðurtorfum við uppgræðslu. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25080