Back to results

University of Iceland

Þegar fósturfrávik greinast á meðgöngu. Reynsla foreldra og heilbrigðisstarfsfólks

Abstract

dc:description.abstract

Greining á fósturfrávikum getur verið mikið áfall fyrir foreldra. Fræðsla og stuðningur eru því mikilvægir þættir í þjónustu við foreldra á þessum tímamótum. Tilgangur þessarar fræðilegu samantektar er að fjalla um upplifun og þarfir foreldra þegar fósturfrávik greinast á meðgöngu, reynslu heilbrigðisstarfsfólks af því að greina frá niðurstöðum og kanna hvað megi betur fara í þessu ferli. Meginniðurstöður þessarar samantektar eru þær, að fræðsla og stuðningur eru lykilþættir í þjónustu heilbrigðisstarfsfólks við foreldra. Helstu þarfir foreldra auk upplýsinga og stuðnings eru að starfsfólk sýni þeim virðingu, að báðir foreldrar séu hafðir með í ráðum í ferlinu og að þeir hljóti einstaklingsmiðaða þjónustu og fjölþætta fræðslu. Heilbrigðisstarfsfólk er sammála um mikilvægi fræðslu en margir þættir virðast hafa áhrif á gæði hennar svo sem þekking, viðhorf og klínísk reynsla sem hafa mest áhrif auk ólíkra viðhorfa til þess hve miklar upplýsinga skuli veita. Þá eru skiptar skoðanir á um hver skuli veita fræðsluna og hvenær. Heilbrigðisstarfsfólk þarf að vera meðvitað um þær þarfir og þann stuðning sem foreldrar þurfa á þessum tíma. Auk þess þarf heilbrigðisstarfsfólk að hafa yfirgripsmikla þekkingu og reynslu til að lágmarka það andlega áfall sem foreldrar geta gengið í gegnum þegar þeir fá vitneskju um fósturfrávik ófædds barns þeirra. Lykilorð: Fósturgreining, upplifun, stuðningur, fræðsla, þarfir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Sigurborg Skúladóttir Kaldal 1986-
  • Sigrún Erla Sveinsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/8797
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/8797

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurborg Skúladóttir Kaldal 1986-; Sigrún Erla Sveinsdóttir 1986-. Þegar fósturfrávik greinast á meðgöngu. Reynsla foreldra og heilbrigðisstarfsfólks. 2011. http://hdl.handle.net/1946/8797