University of Iceland
Samofin list. Myndlist Hildar Ásgeirsdóttur og Hildar Bjarnadóttur skoðuð og borin saman í ljósi femínisma
Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerðinni er fjallað um tvær textíllistakonur, þær nöfnur Hildi Ásgeirsdóttur og Hildi Bjarnadóttur. Ég mun skoða tengsl textíls og málaralistar í ljósi verka þeirra og kanna hvernig þær nýta sér málverkshefðina, bæði hugmyndafræðilega og fagurfræðilega. Ég mun fjalla um viðfangsefni og hugmyndir þeirra og skoða með hvaða hætti þau líkjast viðfangsefnum listmálara en einnig líta á hvernig þær nota handverk í list sinni. Mikið hefur verið ritað um togstreituna milli listar karla og kvenna og þá sérstaklega um hið karllæga málverk í listheiminum. Ég mun skoða þróun myndlistar eftir að femínisminn kom til sögunnar á síðustu öld og hvaða breytingar urðu á listsköpun kvenna í kjölfar stefnunnar. Ég mun leitast við að svara þeirri spurningu hvort þessar tvær listakonur bjóði hinu karllæga málverki birginn með kvenlegum textílverkum sínum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ásdís Ásgeirsdóttir 1967-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/8519
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/8519