Back to results

University of Iceland

„Við áhrif frá hinni gömlu, þjóðlegu list fann ég sjálfan mig.“ Endursköpun hefðarinnar í útskurði Ríkarðs Jónssonar

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um hvernig endursköpun hefðar birtast í tréskurðarverkum Ríkarðs Jónssonar. Ríkarður Jónson var afkastamikill listamaður sem tileinkaði sér nokkur form listgerðar, líkt og höggmyndagerð, teikningu og útskurð. Eftir hann liggja fjölda mörg verk sem eru að finna víðsvegar um land allt sem og erlendis, hvort sem það sé í formi opinberra verka eða í einkaeign. Farið yfir kenningar breska fræðimannsins Eric Hobsbawms sem birtust í bókinni Inventing tradition árið 1983. Mun ég leitast við að færa þær yfir á útskurðarverk Ríkarðs sem og íslenskt samfélag í byrjun síðustu aldar. Farið verður yfir áhrifavalda og þróun listamannsins á tímum sjálfstæðisbaráttu og hvernig áhrif hennar komu fram með sögulegu afturhvarfi í verkum hans. Greind verða þrjú útskurðarverk eftir Ríkarð þar sem farið verður yfir hvernig þjóðleg tákn koma fram í verkunum. Einnig verður fjallað ítarlega um rannsóknir hans á höfðaletri sem fóru fram á þriðja áratug síðustu aldar sem annarra sem einnig hafa rannsakað höfðaletrið til hlítar. Varpað verður ljósi á hver notkun höfðaleturs var í verkum hans.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingunn Sigurðardóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/8490
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/8490

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingunn Sigurðardóttir 1987-. „Við áhrif frá hinni gömlu, þjóðlegu list fann ég sjálfan mig.“ Endursköpun hefðarinnar í útskurði Ríkarðs Jónssonar. 2011. http://hdl.handle.net/1946/8490